Tove nýtti tímann sinn á Íslandi til hins ítrasta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2026 10:32 Tove Alexandersson sést hér búin að ganga upp á sér á Kristínartinda í Vatnajökulsþjóðgarði. @tovealexandersson Sænska hlaupadrottningin Tove Alexandersson naut daganna sem hún eyddi á Íslandi og gerði miklu meira en að vinna tvö af flottustu utanvegahlaupum Íslands.
Tove vann Laugavegshlaupið í ár á nýju brautarmeti en hún naut þess einnig að vera úti í íslensku náttúrunni og hitaði upp fyrir Laugaveginn með því að keppa í Dyrfjallahlaupinu. Auk þess að vinna sinn flokk varð Tove í þriðja sæti í heildarkeppninni í Laugavegshlaupinu og setti brautarmet í kvennaflokki á tímanum fjórum klukkutímum, fjórtán mínútum og átta sekúndum. Tove er ein allra fremsta hlaupakona heims og situr á toppi heimslista ITRA (International Trail Running Association). Hún er ríkjandi heimsmeistari í utanvegahlaupum og hefur þess utan unnið tæplega þrjátíu heimsmeistaratitla í rathlaupi og skíðarathlaupi. View this post on Instagram A post shared by Tove Alexandersson (@tovealexandersson) Tove hefur nú gert upp Íslandsferð sína með flottum myndasyrpum frá ferðinni hennar. Hún birti meðal annars magnaða mynd af sér á Kristínartindum sem eru innan svæðis Skaftafells í suðurhluta Vatnajökulsþjóðgarðs. Gönguleiðir á Kristínartinda eru frá tjaldstæðinu í Skaftafelli. „Ísland. Fyrsti dagurinn í Reykjavík, skoðunarferð um borgina, dýrindis matur og hlaup á gígum, fjöllum og hraunum,“ skrifaði Tove og hélt áfram: „Dagur 2: Bílferð til Akureyrar og skoðunarferð að fossum. Dagur 3: Hálfur dagur á Akureyri með hlaupi í fjöllunum og endurheimtarbaði til að vera tilbúin fyrir helgina,“ skrifaði Tove. „Bílferðin heldur áfram með nokkrum stoppum á flottum stöðum, Grjótagjá. Stopp á flottu jarðhitasvæði og fara til Bakkagerðis fyrir Dýrfjallahlaupið,“ bætti Tove við. „Við nýttum svo sannarlega tímann okkar á Íslandi til hins ítrasta. Þetta var frábær upplifun með allri þessari flottu náttúru og vinalega fólkinu sem við hittum,“ skrifaði Tove. „Síðustu þrír dagarnir, föstudagurinn á Gullna hringnum, með Strokk, Gullfoss, Laugarvatn og Þingvelli. Laugavegshlaupið síðasta laugardag, 55 km frá Landmannalaugum til Húsadals í gegnum stórbrotið landslag. Síðasti dagurinn í eins kílómetra langa hellinum Leiðarenda og Brimkatli áður en flogið var heim,“ skrifaði Tove. View this post on Instagram A post shared by Tove Alexandersson (@tovealexandersson)
Hlaup Laugavegshlaupið Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Sjá meira