Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. júlí 2026 18:07 Ryan Fox komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna breska meistaramótinu í fyrra en gerði sér lítið fyrir og vann það í ár. getty/Oisin Keniry Ryan Fox, 39 ára Nýsjálendingur, stóð uppi sem sigurvegari á Opna breska meistaramótinu í golfi sem lauk í dag. Þetta er hans fyrsti sigur á risamóti á ferlinum.
Í gær jafnaði Fox vallarmetið á Royal Birkdale er hann lék á átta höggum undir pari. Fox var tveimur höggum á eftir Sam Burns fyrir lokahringinn í dag. Eftir að hafa leikið á fimm höggum undir pari í gær náði Burns sér ekki jafn vel á strik í dag. Bandaríkjamaðurinn lék lokahringinn á tveimur höggum yfir pari og varð að gera sér 3. sætið á mótinu að góðu. Cameron Young lék manna best í dag, á sex höggum undir pari, og hann lauk leik á samtals átta höggum undir pari. Young kláraði á undan Fox og vonaðist til þess að hann misstigi sig svo úrslit mótsins réðust í bráðabana. Til þess kom þó ekki. Fox gat tryggt sér sigurinn með því að fá fugl á 18. holu og gerði það. Fox sýndi mikið öryggi þegar mest var undir en hann fékk fjóra fugla á síðustu sex holunum. Ryan Fox. Nerves of steel. That is how you win The 154th Open. pic.twitter.com/M6YxCYEuXA— The Open (@TheOpen) July 19, 2026 Fox lék á tveimur höggum undir pari í dag og á tíu höggum undir pari samtals. Hann er fjórði kylfingurinn frá Nýja-Sjálandi sem vinnur risamót. Áður höfðu Bob Charles, Michael Campbell og Lydia Ko afrekað það.
Golf Opna breska Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira