Sport

Dag­skráin í dag: Leikið í Krikanum og á Suður­nesjum og Stúkan gerir allt upp

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kjartan Kári Halldórsson og félagar í FH hafa ekki tapað í fimm deildarleikjum í röð. Þeir fá Breiðablik í heimsókn í kvöld.
Kjartan Kári Halldórsson og félagar í FH hafa ekki tapað í fimm deildarleikjum í röð. Þeir fá Breiðablik í heimsókn í kvöld. vísir/diego

Síðustu tveir leikirnir í 15. umferð Bestu deildar karla verða sýndir á sportrásum Sýnar í kvöld. Einnig verður sýnt beint frá leik í Bestu deild kvenna.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 19:00 verður sýnt beint frá leik FH og Breiðabliks í Bestu deild karla í fótbolta.

Klukkan 21:25 er komið að beinni útsendingu frá Stúkunni þar sem allir leikirnir í 15. umferð Bestu deildar karla verða gerðir upp.

Sýn Sport Ísland 2

Klukkan 19:05 hefst bein útsending frá leik Keflavíkur og ÍA í Bestu deild karla.

Sýn Sport Ísland 3

Klukkan 19:05 verður sýnt beint frá viðureign Grindavíkur/Njarðvíkur og Þróttar í Bestu deild kvenna í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×