Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. júlí 2026 23:36 Guðrún Brá Björgvinsdóttir er með góða forystu í Hvaleyrarbikarnum. Getty/Charles McQuillan Fyrir lokahring Hvaleyrarbikarsins í golfi leiða Aron Snær Júlíusson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Öllu meiri spenna er í karlaflokknum en kvennamegin.
Aron er með eins höggs forskot á Böðvar Braga Pálsson fyrir lokahringinn. Aron lék annan hringinn í dag á tveimur höggum undir pari. Aron hefur unnið öll þrjú mótin sem hann hefur keppt á í sumar og haldi hann rétt á spilunum á morgun bætir hann fjórða sigrinum við. Aron er samtals á fjórum höggum undir pari en Böðvar Bragi á þremur höggum undir pari. Jóhannes Guðmundsson, sem er ríkjandi Hvaleyrarbikarmeistari, er í 3. sæti á einu höggi undir pari. Guðrún er með fimm högga forskot í kvennaflokki og í góðri stöðu fyrir lokahringinn. Guðrún er samtals á einu höggi yfir pari en næst kemur Elsa Maren Steinarsdóttir á sex höggum yfir pari. Þóra Sigríður Sveinsdóttir er þriðja á átta höggum yfir pari og Perla Sól Sigurbrandsdóttir er í 4. sætinu á níu höggum yfir pari. Fylgjast má með gangi mála á mótasíðu Hvaleyrarbikarsins.
Golf Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira