Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. júlí 2026 19:55 Bandaríkjamaðurinn Sam Burns er með forystu fyrir fjórða og síðasta hringinn á Opna breska meistaramótinu í golfi. getty/Peter Byrne Sam Burns er með tveggja högga forystu fyrir lokadaginn á Opna breska meistaramótinu í golfi. Miklar líkur eru á því að kylfingur sem hefur aldrei unnið risamót standi uppi sem sigurvegari á Opna breska í ár.
Ryan Fox spilaði frábærlega á þriðja hringnum í dag og jafnaði vallarmetið á Royal Birkdale. Hann lék hringinn á 62 höggum, átta höggum undir pari, líkt og Lucas Herbert og Burns í gær. Burns lék á fimm höggum undir pari í dag og er samtals á tíu höggum undir pari. Fox og Kim Si-woo koma þar á eftir á samtals átta höggum undir pari og Herbert og Ryan Gerard eru á samtals sjö höggum undir pari. Enginn þeirra hefur unnið risamót á ferlinum en það gæti breyst á morgun. Bryson DeChambeau hefur verið mikið á milli tannanna á fólki eftir refsinguna sem hann fékk í gær fyrir að laga legu boltans. DeChambeau lék á einu höggi undir pari í dag og er samtals á sex höggum undir pari líkt og Ludvig Åberg og Jackson Suber. Scottie Scheffler, sem á titil að verja á Opna breska, lék á pari vallarins í dag og er samtals á fjórum höggum undir pari. Bein útsending frá lokadegi Opna breska hefst klukkan 08:00 á Sýn Sport á morgun.
Golf Opna breska Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira