Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. júlí 2026 15:08 Kerr fagnaði ákaft. Michael Steele/Getty Images Skoski hlauparinn Josh Kerr náði að slá heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í heil 27 ár. Hann kom í mark á tímanum 3:42,66 sem er bæting um tæpa hálfa sekúndu á fyrra meti Marokkómannsins Hicham El Guerrouj (3:43.13) frá árinu 1999.
Hinn 28 ára gamli Kerr hljóp mílu á Demantamóti í Lundúnum, eða fjóra hringi í kringum völlinn á London Stadium, rétt í þessu og sló metið. Eins og hann hafði lofað í aðdraganda mótsins. Josh Kerr 🇬🇧 demolishes the World Record in the mile with a 3:42.66 at the London Diamond League!He breaks Hicham El Guerrouj's World Record set 27 years ago. pic.twitter.com/3oTct56STk— Track & Field Gazette (@TrackGazette) July 18, 2026 Hann hefur stefnt að heimsmetinu síðan hann lýsti því opinberlega yfir í mars að það yrði slegið á þessu ári og vakið mikla athygli fyrir að sýna frá undirbúningi sínum á YouTube. Kerr hefur hingað til aðallega keppt í 1500 metra hlaupi, örlítið styttra en míluhlaupi sem er 1609,34 metrar. Hann varð heimsmeistari í greininni árið 2023 og vann silfurverðlaun á Ólympíuleikunum 2024. Í míluhlaupinu í dag sló hann í leiðinni sinn besta tíma í 1500 metra hlaupi, 3:27,79, um þrjá hundraðshluta, þó það færist ekki formlega til bókar. Kerr keppir fyrir hönd Bretlands á Demantamótaröðinni. Harry Murphy/Getty Images Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út á London Stadium þegar metið var í höfn hjá Kerr og meðal þeirra sem sátu í stúkunni var Sebastian Coe, forseti alþjóða frjálsíþróttasambandsins og fyrrum heimsmethafi í míluhlaupi. Kerr mun reyna að bæta nýslegið heimsmet sitt á Samveldisleikunum sem haldnir verða í Glasgow í Skotlandi um næstu mánaðamót.
Hlaup Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sjá meira