Börn þurfa meira en stærðfræði Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar 18. júlí 2026 16:32 Í nýrri greiningu mennta- og barnamálaráðuneytisins á stöðu námsgagna er lagt til að stærðfræði verði forgangsverkefni íslenska menntakerfisins næstu þrjú árin. Greiningin sýnir að kennarar treysta í ríkum mæli á eigið námsefni og kalla eftir markvissari stuðningi, samræmdu námsefni og skýrari framvindu í námi. Það er mikilvægt skref. En sömu rök eiga við um fleiri grunnstoðir menntunar. Ef við teljum rétt að fjárfesta markvisst í stærðfræðikennslu vegna þess að hún skiptir máli fyrir framtíð barna, ættum við þá ekki einnig að fjárfesta í þeirri færni sem rannsóknir sýna að hefur áhrif á geðheilsu, námsárangur, samskipti og lífsgæði? Hvað viljum við að börnin okkar kunni þegar þau útskrifast úr grunnskóla? Við viljum að börnin okkar læri að lesa, skrifa og reikna. Við viljum að þau búi yfir góðu fjármálalæsi, skilji tækni og vísindi, kunni að vinna með höndunum og geti tjáð sig á nokkrum tungumálum. Þannig viljum við að þau séu vel undirbúin fyrir framhaldsnám og atvinnulíf framtíðarinnar. Allt eru þetta gildar og góðar óskir. En viljum við ekki líka að þau geti tekist á við mótlæti, sýnt samkennd, átt heilbrigð samskipti, leyst ágreining, þekkt eigin tilfinningar og haft trú á eigin getu? Fyrst og fremst viljum við að þeim líði vel og séu hamingjusöm, ekki satt? Við höfum lengi litið á félags- og tilfinningafærni sem eitthvað sem börn læra einfaldlega með aldrinum eða í gegnum uppeldi. Rannsóknir síðustu áratuga sýna hins vegar annað. Líkt og læsi og stærðfræði er félags- og tilfinningafærni eitthvað sem hægt er að kenna markvisst, æfa og efla. Barn sem á erfitt með að stjórna tilfinningum sínum eða á í erfiðum samskiptum við jafnaldra á oft jafnframt erfiðara með að einbeita sér og læra. Þegar börn læra að þekkja tilfinningar sínar, stjórna þeim og leysa ágreining skapast betri forsendur fyrir námi og þroska. Markviss kennsla í félags- og tilfinningafærni skilar sér í meiri vellíðan, auknum námsárangri og sterkari samskiptum. Þegar við kennum börnum að þekkja eigin tilfinningar, setja orð á þær og skilja tilfinningar annarra erum við að stuðla að betri líðan, kenna þeim sjálfstjórn, sjálfsþekkingu og samkennd. Þegar við kennum þeim að mistök séu eðlilegur hluti náms byggjum við upp seiglu og gróskuhugarfar. Þegar við kennum þeim að leysa ágreining af virðingu og hlusta á ólík sjónarmið erum við um leið að undirbúa þau fyrir lýðræðislegt samfélag. Íslenskt samfélag hefur breyst. Nemendahópar eru fjölbreyttari en áður og kennarar sinna í sífellt ríkari mæli verkefnum sem snúa að félags- og tilfinningaþroska barna, samskiptum, sjálfsmynd og geðrænum áskorunum. Það kallar á markvissa kennslu og vandað íslenskt námsefni sem styður við þessa mikilvægu þætti skólastarfs. Í Aðalnámskrá grunnskóla eru grunnþættir menntunar skýrir. Þar er lögð áhersla á lýðræði, mannréttindi, jafnrétti, heilbrigði og velferð ásamt lykilhæfni á borð við sjálfstæði, ábyrgð, samskipti og samvinnu. Þetta eru metnaðarfull markmið sem njóta víðtækrar samstöðu. En markmiðunum verður ekki náð nema kennarar hafi aðgang að vönduðu námsefni sem styður við kennsluna. Finnland, sem lengi hefur verið talið meðal fremstu skólaþjóða heims, hefur lagt ríka áherslu á félags- og tilfinningafærni sem hluta af kjarna menntun. Þar er vellíðan, sjálfsvitund, samkennd og tilfinningastjórnun samþætt daglegu skólastarfi. Sú sýn endurspeglast ekki aðeins í menntakerfinu heldur einnig í samfélagi sem hefur árum saman verið metið meðal þeirra hamingjusömustu í heiminum. Á Íslandi hefur mikið og gott starf verið unnið í einstökum skólum og kennarar hafa sýnt einstakt frumkvæði við að þróa eigið kennsluefni. Rannsókn sem birt var fyrir fáum árum sýndi að um 70% kennara nota heimatilbúið námsefni oft eða mjög oft og nær allir að einhverju leyti. Það er til marks um mikla fagmennsku og útsjónarsemi kennara en um leið vísbending um að skortur sé á vönduðu, aðgengilegu námsefni. Nýtt íslenskt námsefni í félags- og tilfinningafærni Við þurfum að þróa nýtt íslenskt námsefni sem byggir á rannsóknum, styður við Aðalnámskrá og tekur mið af íslenskum veruleika. Námsefni sem vinnur markvisst með sjálfsmynd, tilfinningalæsi, samskipti, samvinnu, virðingu, gróskuhugarfar og seiglu. Námsefni sem hentar öllum börnum, óháð lestrarfærni, tungumálabakgrunni eða öðrum forsendum, þannig að hvert barn geti tekið virkan þátt. Slíkt námsefni þarf jafnframt að endurspegla íslenskan samtíma og þann veruleika sem börn búa við í dag. Barn sem upplifir öryggi, trúir á eigin getu og kann að vinna með öðrum lærir betur. Barn sem hefur orð yfir tilfinningar sínar á auðveldara með að takast á við áskoranir. Barn sem lærir að mistök séu hluti af námi gefst síður upp þegar verkefnin verða erfið. Þess vegna er fjárfesting í félags- og tilfinningafærni ekki aðeins fjárfesting í vellíðan barna heldur einnig í betri námsárangri, sterkari samfélagsfærni og öflugra samfélagi. Við segjum oft að börnin séu framtíðin. Ef við trúum því í alvöru verðum við líka að spyrja okkur hvort við séum að kenna þeim þá færni sem skiptir miklu máli þegar skólagöngunni lýkur. Kannski er kominn tími til að við spyrjum nýrrar spurningar: Ef við erum sammála um að félags- og tilfinningafærni sé lykill að bættri geðheilsu, vellíðan, námsárangri og farsælu samfélagi, ætti þróun íslensks námsefnis á því sviði þá ekki að vera meðal forgangsverkefna íslenska menntakerfisins? Höfundur er náms- og starfsráðgjafi með MA diploma í jákvæðri sálfræði, rithöfundur og höfundur námsefnis um félags- og tilfinningafærni fyrir grunnskólabörn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálfstæðinu? Jón Daníelsson Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Þegar framsetning verður að umbótum Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálfstæðinu? Jón Daníelsson skrifar Skoðun Verðið er skilgreint – varan ekki Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin er alltaf klofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Auðlindirnar eru okkar, hvort sem við erum í EES eða ESB Lárus M. K. Ólafsson skrifar Skoðun Bændur á bremsunni Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Málþing bændasamtakanna frá sjónarhóli bónda Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? skrifar Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þegar kennivald kemur í stað raka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson skrifar Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera skrifar Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Sjá meira
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun
Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun