Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Andri Broddason skrifar 17. júlí 2026 17:00 Pep Guardiola náði samkomulagi við enska knattspyrnusambandið um að taka við liðinu árið 2024. Hann ákvað þó að halda tryggð við Manchester City. Getty/Shaun Brooks Eftir brottför Gareth Southgate sem þjálfari enska landsliðsins hófst leit knattspyrnusambandsins þar í landi að nýjum þjálfara. Sambandið vildi þjálfara sem væri sigurvegari og voru viðræður við Pep Guardiola um að hann myndi taka við liðinu.
Eftir tap í úrslitaleik Evrópumótsins 2024 gegn Spáni sagði Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, af sér. Þá hófst leit enska knattspyrnusambandsins að nýjum þjálfara liðsins. England var með augljóst markmið og það var að verða heimsmeistari í fótbolta árið 2026. Enska knattspyrnusambandið lagði þá áherslu á að næsti þjálfari Englands myndi vera mikill sigurvegari. Þá hófust viðræður árið 2024 við Pep Guardiola, þjálfara Manchester City á Englandi. Samkvæmt The Athletic var munnlegu samkomulagi náð milli Guardiola og enska knattspyrnusambandsins en að lokum hafi Guardiola haldið tryggð við Manchester City. Thomas Tuchel var því ráðinn sem þjálfari Englands og var ætlast til þess að hann myndi setja sinn svip á liðið. Stuðningsmenn Englands urðu fyrir vonbrigðum í undanúrslitum heimsmeistaramótsins 2026 þegar enska liðið lagðist í vörn of snemma gegn Argentínu eftir að hafa náð forystu. England endaði á að tapa leiknum 2-1. Mun enska knattspyrnusambandið ræða aftur við Guardiola? Eftir tapið hefur hluti stuðningsmanna Englands viljað að Tuchel segi af sér sem þjálfari enska landsliðsins. Nú hefur Pep Guardiola yfirgefið Manchester City og er því ekki að þjálfa neitt félag. Þar sem hann hefur áður náð munnlegu samkomulagi um að stjórna enska liðinu verður hann að teljast líklegur einstaklingur til þess að taka við liðinu ef Tuchel heldur ekki áfram. Samningur Thomas Tuchel gildir fram yfir Evrópumótið 2028 og hefur hann sagt að hann ætli að klára samninginn. Ef enska liðið hefði ekki komist í 8-liða úrslit heimsmeistaramótsins hefði enska knattspyrnusambandið getað rift samningnum við hann. Pep Guardiola er einn sigursælasti þjálfari allra tíma þar sem hann hefur þjálfað Manchester City, Bayern Munchen og Barcelona. Hann hefur unnið meira en 40 titla með þessum liðum og þar á meðal þrennuna með bæði Barcelona árið 2009 og Manchester City árið 2023.
HM 2026 í fótbolta England Enski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira