Blatter baunar aftur á FIFA: „Lengsta hlé í sögu fótboltans“ Sindri Sverrisson skrifar 17. júlí 2026 15:02 Shakira er í stjörnum prýddum hópi þeirra sem koma fram í hálfleikshléinu í úrslitaleik HM. Gianni Infantino, forseti FIFA, hefur verið gagnrýndur fyrir að leyfa lengra hálfleikshlé en leyfilegt er samkvæmt lögum fótboltans. Getty/Eva Marie Uzcategui Sepp Blatter, sem neyddist til að segja af sér sem forseti FIFA (alþjóða knattspyrnusambandsins) vegna spillingarmála, heldur áfram að gagnrýna sambandið vegna þess sem á gengur á heimsmeistaramótinu í Norður-Ameríku.
Blatter er í hópi þeirra sem eru lítt hrifnir af Bandaríkjavæðingu mótsins sem segja má að nái hámarki með hléinu í hálfleik úrslitaleiksins á sunnudagskvöld, sem óttast er að geti orðið allt að hálftíma langt vegna sýningar í hálfleik. Samkvæmt lögum fótboltans ætti hálfleikshlé að hámarki að vera fimmtán mínútur. „Drykkjarhléin voru bara byrjunin. Á sunnudaginn kemur hápunkturinn í úrslitaleik HM – lengsta hálfleikshlé í sögu fótboltans. Úrslitaleikur HM verður eftirmynd af Super Bowl. Quo vadis [hvert stefnir þú], FIFA?“ skrifaði Blatter á Twitter og notaði meðal annars myllumerkið #gianniinfantino til að leggja áherslu á að hann beindi spjótum að eftirmanni sínum, Gianni Infantino. The hydration breaks were just the start. On Sunday, the World Cup final will see the highlight of the tournament – the longest half-time-break in football-history. The World Cup final as a copy of the Super Bowl. Quo vadis, FIFA? #fifa #fifaworldcupfootball #hydrationbreak…— Joseph S Blatter (@SeppBlatter) July 17, 2026 Blatter lét áður í sér heyra fyrir ellefu dögum þegar hann sagði sína skoðun eftir að Folarin Balogun, framherja Bandaríkjanna, var leyft að spila þrátt fyrir rautt spjald. Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði þá hreykt sér af sínum þætti í málinu en hann hringdi í Infantino. FIFA hefur sagt niðurstöðuna um Balogun koma alfarið frá óháðri aganefnd sem ekki hefur þurft að rökstyðja ákvörðunina. „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum. Þeim er snúið við með reglum, sönnunargögnum og óháðum aðilum,“ skrifaði Blatter þá á Twitter og bætti við: „Ef Bandaríkjaforseti hefur afskipti af forseta FIFA, og leikmaður er skyndilega sýknaður fyrir leik í útsláttarkeppni á HM, er spurningin óumflýjanleg: Quo vadis [hvert stefnir þú], FIFA? Fótbolti má aldrei verða leikvöllur pólitískra valda.“ Blatter hætti sem forseti FIFA 2015 þegar hann var dæmdur í átta ára bann frá fótbolta. Bannið var stytt niður í sex ár en siðanefnd FIFA úrskurðaði Blatter svo í annað sex ára bann 2021.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira