Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson skrifar 17. júlí 2026 09:01 Þetta er fyrri grein af tveimur um samskipti, orðræðu og framkomu í samfélaginu. Hér er fjallað almennt um hvernig framkoma fólks í áhrifastöðu hefur áhrif á trúverðugleika, traust og sameiginlega dómgreind - sem eru meðal mikilvægustu forsenda þess að samfélag geti tekið upplýstar ákvarðanir. Greinin fjallar því ekki um Evrópusambandið eða önnur einstök stjórnmálamál sem slík. Hún leitast við að skýra hvers vegna fólk finnur stundum að eitthvað stemmir ekki í samskiptum löngu áður en það getur sett þá tilfinningu í orð. Í síðari greininni verður þessari greiningu síðan beitt á umræðuna um áframhald viðræðna Íslands við Evrópusambandið sem dæmi um það hvernig sömu samskiptalögmál birtast í opinberri umræðu og lýðræðislegri ákvarðanatöku. Svona glatast trúverðugleikinn Fullur trúverðugleiki glatast sjaldnast í einni yfirlýsingu. Hann hverfur í litlum augnablikum. Oft er fjallað um algjöra félagslega og vitsmunalega afhjúpun - en sjaldnar um það augnablik þegar einstaklingur eyðileggur eigin trúverðugleika með framkomu sinni. Stundum verður útkoman jafnvel afhjúpun sem viðkomandi gerir sér sjálfur ekki grein fyrir. Fólk finnur oft að eitthvað stemmir áður en það getur útskýrt hvers vegna. Sú tilfinning verður ekki til af engu. Í boðskiptafræði er löngu þekkt að mannsheilinn metur ekki aðeins innihald skilaboða heldur einnig framkomu, raddblæ, valdastöðu og trúverðugleika þess sem talar. Þess vegna eru þeir sem gegna áhrifastöðu metnir eftir öðrum mælikvarða en þeir sem fara ekki með sambærileg samfélagsleg áhrif. Þegar hrokinn talar Þegar einstaklingur í áhrifastöðu talar niður til annarra af hrokafullri ofurvissu sendir hann jafnframt skilaboð um sjálfan sig. Slík framkoma getur bent til takmarkaðrar sjálfsgagnrýni, lakari dómgreindar, minni þekkingar eða minna öryggis í eigin málstað en orðspor viðkomandi gaf áður tilefni til að ætla. Hegðunin verður þannig hluti af skilaboðunum. Yfirlætisleg framkoma - hvort sem hún beinist að konum eða körlum - er því ekki aðeins samskiptalega óheppileg. Hún grefur undan gagnkvæmri virðingu, dregur úr trausti og veikir forsendur uppbyggilegs samtals. Þegar hún byggist jafnframt á meðvituðum ósannindum verður hún einnig siðferðilega ámælisverð. Þegar orðræðan tekur yfir Þessi lögmál eiga ekki aðeins við í samskiptum einstaklinga. Þau birtast einnig í opinberri umræðu og þar með í sjálfu lýðræðinu. Í opinberri umræðu geta orðræðutækni og kappræðuhæfni orðið það áhrifamiklar að þær skyggja á sjálft viðfangsefnið. Sá sem hefur áralanga þjálfun í rökræðum býr yfir augljósu forskoti gagnvart almennum kjósanda sem hvorki hefur sömu þjálfun né tíma til að greina í rauntíma hverja forsendu, hverja rökvillu og hvert orðræðubragð. Þá skapast sú hætta að sigur í orðræðunni fari smám saman að skipta meira máli en sameiginleg leit að sannleikanum. Hvort sem barist er fyrir jái eða neii ráðast áhrif áróðurs og undirróðurs sjaldnast af því hver hefur rétt fyrir sér heldur hver nær fyrstur og best að móta tilfinningar fólks. Þar reynir á siðgæði hvers og eins, enda eru áhrif tilfinninga á dómgreind oft vanmetin. Þegar það gerist verða samskiptin sjálf hluti af vandanum. Trúverðugleiki er ein af mikilvægustu forsendum trausts. Traust er aftur forsenda þess að fólk sé reiðubúið að hlusta hvert á annað. Án slíks trausts veikist samtalið. Þegar samtalið veikist minnkar jafnframt getasamfélagsins til að mynda sameiginlega dómgreind. Þar með veikjast einnig forsendur lýðræðislegrar ákvarðanatöku. Í raun fjalla þessar tvær greinar um forsendur upplýstrar ákvarðanatöku. Þar eru samskipti verkfærið, traust skilyrðið, sameiginleg dómgreind ferlið og upplýst ákvörðun afleiðingin. Í þessari fyrri grein var fjallað um hvernig trúverðugleiki, traust og samtal verða til eða glatast í mannlegum samskiptum og hvers vegna þau eru meðal mikilvægustu forsenda lýðræðislegrar ákvarðanatöku. Í næstu grein, hér að neðan, verður þessari greiningu beitt á eitt umdeildasta samfélagsmál samtímans. Má banna samtalið? Spurningin kann að hljóma öfgakennd. Ef samtal er grunnforsenda lýðræðis vaknar eðlilega spurningin hvort yfirleitt sé hægt að réttlæta að hafna því áður en niðurstöður samtalsins liggja fyrir. Þar kemur eitt umdeildasta samfélagsmál samtímans til sögunnar. Samtal, í hvaða mynd sem það birtist, er ein af grunnforsendum mannlegs samfélags. Með samtali lærir fólk hvert af öðru, prófar eigin orðun og hugmyndir, leiðréttir ranghugmyndir og öðlast dýpri skilning. Að hafna samtalinu fyrir fram er því ekki aðeins höfnun á tiltekinni skoðun heldur einnig á þeirri aðferð sem í gegnum aldir hefur stuðlað að þekkingu, öryggi og framþróun samfélaga. Dæmið úr íslenskri umræðu Þessi almennu lögmál birtast skýrt í umræðunni um áframhald viðræðna Íslands við Evrópusambandið. Hvers vegna tala sumir um frelsi og lýðræði en leggjast jafnframt gegn því að þjóðin fái sjálf að ákveða hvort halda eigi áfram viðræðum? Það er erfitt að samræma slíka afstöðu þeim lýðræðisgildum sem hún segist byggja á. Ef traust er forsenda lýðræðis hlýtur traust til kjósenda einnig að vera hluti af þeirri hugsun. Að óttast niðurstöðu lýðræðislegrar ákvörðunar er ekki hið sama og að verja lýðræðið. Viðræður fela ekki í sér aðild að Evrópusambandinu. Þær fela í sér að afla upplýsinga, kanna valkosti, ræða hagsmuni Íslands og afla þekkingar áður en endanleg ákvörðun er tekin um að taka sæti við borðið meðal fullvalda evrópskra ríkja þar sem rædd eru málefni sem hafa áhrif á Ísland. Hvort slíkt ferli leiðir síðar til aðildar eða ekki er síðan sjálfstæð ákvörðun þjóðarinnar. Á að kjósa um upplýsingar? Þegar litið er á samtal sem grunnforsendu lýðræðis vaknar athyglisverð spurning. Á yfirleitt að greiða atkvæði um hvort þjóð megi afla upplýsinga og ræða við aðra áður en hún tekur ákvörðun? Í sjálfu sér ætti það vart að vera álitamál. Samtal er ekki niðurstaða heldur forsenda upplýstrar niðurstöðu. Þá vaknar enn stærri spurning. Er litið á Ísland sem eitt samfélag þar sem hagsmunir alls almennings skipta máli eða sem safn af afmörkuðum eiginhagsmunahópum sem verja fyrst og fremst eigin stöðu? Þangað til orðin missa gildi sitt Þegar orðræða verður í vaxandi mæli valdboðandi og frekjuleg og sífellt minna byggð á virðingu fyrir dómgreind almennings byrjar fólk að finna að eitthvað stemmir ekki. Það getur oft ekki útskýrt nákvæmlega hvers vegna. Heilinn nemur ósamræmið löngu áður en rökin hafa verið sett fram í orðum. Við þekkjum öll þetta lögmál orðsporsins. Kannski er það einmitt þess vegna sem fullur trúverðugleiki glatast sjaldnast í einni yfirlýsingu. Hann hverfur í litlum augnablikum þar til framkoman segir að lokum meira en orðin. Höfundur er boðskiptafræðingur og áhugamaður um að tala við fólk, tala um fólk og læra sem flest af öðrum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stjórnsýsla Stjórnun Tjáningarfrelsi Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar