Sport

Eins og Tiger Woods myndi mæta á meistaramótið í Mos­fells­bæ

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Nino Schurter er af mörgum talinn besti fjallahjólreiðamaður sögunnar.
Nino Schurter er af mörgum talinn besti fjallahjólreiðamaður sögunnar. Dustin Satloff/Getty Images

Nino Schurter, margfaldur heims- og Ólympíumeistari í fjallahjólreiðum, hefur boðað komu sína í malarhjólreiðakeppnina The Rift sem fer fram um helgina.

The Rift verður haldið í sjöunda sinn á Hvolsvelli helgina 17. - 18. júlí og metþátttaka er í ár. Í fyrsta sinn býður keppnin upp á fjórar leiðir, frá 60 km upp í 330 km, sem gerir fleiri hjólreiðamönnum kleift að upplifa hálendið og einstaka náttúru Íslands.

Um þúsund keppendur eru skráðir til leiks en hverjum keppenda fylgir einn eða tveir aðstoðarmenn. Búist er því við um 2.500 manns á Hvolsvelli um helgina, að langstærstum hluta erlendis frá. Hjólað er frá Hvolsvelli, undir Heklurætur, upp Krakatind og Fjallabak, og endað aftur á Hvolsvelli.

Mynd frá The Rift.The Rift

Meðal þátttakenda í ár er Nino Schurter, margfaldur heimsmeistari og Ólympíumeistari í fjallahjólreiðum, sem er af mörgum talinn einn besti fjallahjólreiðamaður allra tíma.

Dana Rún Hákonardóttir, ein af skipuleggjendum The Rift, greindi frá því í Bítinu á Bylgjunni að Schurter hefði sjálfur boðað komu sína.

„Þetta var mjög tilviljanakennt. Ég fékk tölvupóst frá Nino Schurter og ég, sem kem ekki úr þessum keppnishjólreiðageira, spyr yfirmenn mína um hann. Benni, sem stofnaði Rift, fór alveg upp á afturfæturna og var bara: „Hvað ertu að segja?“. Þá er þetta auðvitað bara einn besti hjólreiðamaður allra tíma,“ sagði Dana Rún létt í bragði.

Schurter hefur unnið til verðlauna í fjallahjólreiðum á Ólympíuleikunum.Alex Broadway/Getty Images

„Þetta er bara eins og ef Tiger Woods myndi mæta á meistaramótið í Mosfellsbæ“ sagði Sigmar Vilhjálmsson þá.

„Þetta er þannig. Þetta er alveg risastórt dæmi. Hann er semsagt fjallahjólreiðamaður en lagði þá skó á hilluna síðasta sumar. Nú ætlar hann að leika sér í malarhjólreiðum og byrjar hér á Íslandi,“ sagði Dana og hún telur þátttöku Schurter eiga eftir að gera The Rift að enn eftirsóttari viðburði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×