„Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júlí 2026 22:01 Harry Kane og Jude Bellingham hafa skorað sex mörk hvor á þessu heimsmeistaramóti og tólf af þrettán mörkum enska landsliðsins á öllu mótinu. Getty/Julian Finney Harry Kane, fyrirliði enska landsliðsins, hefur vísað til föðurhúsanna hugmyndum um ágreining innan enska landsliðshópsins og fullyrðir að „fullkomin samstaða“ ríki fyrir undanúrslitaleikinn gegn Argentínu á HM annað kvöld.
England tryggði sér sæti í undanúrslitum með því að knýja fram 2-1 sigur á Noregi í framlengdum leik í miklum hita í Miami. Jude Bellingham svaraði mati landsliðsþjálfarans Thomas Tuchel eftir leikinn um að liðið hefði ekki spilað vel. Stjarnan frá Real Madrid skoraði tvö mörk til að koma liði sínu áfram og virtist draga orð Tuchel í efa með því að gefa í skyn að „hann viti ekki hvernig það er að spila við slíkar aðstæður.“ Ræddi ósætti í hópnum En Kane gerði lítið úr hugmyndum um ósætti í hópnum og sagði við breska ríkissjónvarpið: „Þegar þú ert að spila svona leik og færð spurningu fimm mínútum eftir lokaflautið, og hann vissi í raun ekki hvað stjórinn hafði sagt. Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ spurði Kane. „Við vorum nýbúnir að heyja baráttu. Þetta var virkilega erfitt þarna úti. Það er auðvelt að reyna að skapa þennan ágreining – það virðist vera enskur hugsunarháttur, eitthvað enskt sem gert er á þessum stórmótum,“ sagði Kane. Gert meira úr en þeir eru „En það er þveröfugt. Hópurinn er þar sem hann er vegna samstöðu okkar – ekki bara leikmannanna, heldur líka þjálfarans og starfsliðsins. Stundum er hlutunum gert meira úr en þeir eru,“ sagði Kane. Kane viðurkennir að hreinskilni Tuchel sé það sem geri hann að úrvalsþjálfara en fullyrðir að Þjóðverjinn hafi verið jákvæður við hópinn. „Við skiljum það. Leikmenn á vellinum vita betur en nokkur annar hvenær þú spilar vel og hvenær ekki, það er hluti af fótboltanum. Við skiljum hvað stjórinn átti við, stjórinn hefur hrósað hópnum svo mikið,“ sagði Kane. Hann er opinskár og fólk kann að meta það „Hann sagði að hugarfar hópsins, sem er stundum erfiðasti hlutinn, hefði verið á hæsta, hæsta stigi og hefði verið það um nokkurt skeið. Hann er opinskár og fólk kann að meta það. Þegar hann talar er það aldrei handrit. Það er það sem gerir hann að þeim sem hann er,“ sagði Kane. „Hann er einn af bestu stjórum heims af ástæðu. Við skiljum það. Undanfarin tvö ár höfum við kynnst honum og vitum hvað gleður hann,“ sagði Kane. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible)
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira