Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson skrifar 13. júlí 2026 08:02 Í Sprengisandi um helgina sagði Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra það sem margir hafa hugsað en fáir í hennar stöðu hafa sagt upphátt: „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi." Hún var að tala um að hátt í helmingur drengja útskrifast úr grunnskóla með svo slakan lesskilning að stór hluti þeirra á fá tækifæri í frekara námi. Hún hefur rétt fyrir sér. Og það skiptir máli að ráðherra segi það umbúðalaust. Í viðtalinu sagði hún líka: „Það þarf ekki fleiri samtöl, það þarf ekki fleiri skýrslur, það þarf ekki hillumetra eða meiri peninga í einhverjar rannsóknir." Þessi orð hefðu getað komið beint úr grein sem ég skrifaði hér á Vísi í byrjun júní. Þar sagði ég að það vantaði ekki enn eitt átakið, það vantaði aðgerðir. Það gladdi mig að heyra ráðherra tala svona. Við erum sammála um stöðuna og við erum sammála um að tími greininga sé liðinn. Þess vegna vil ég segja það skýrt: Ég vil vera í liði með ráðherranum í þessu verkefni. Viðurkenningin er fyrsta skrefið Það er auðvelt að gagnrýna stjórnvöld fyrir stöðuna í menntakerfinu. Innviðaskuldin sem ráðherra lýsir varð ekki til á einu kjörtímabili. Hún hefur safnast upp árum saman á meðan Þróunarsjóður námsgagna hefur aðeins um 39% af því fjármagni sem hann hafði árið 2007 og um 70% kennara segjast útbúa eigið kennsluefni vegna þess að annað er ekki til staðar. En gagnrýnin ein og sér lagar ekkert. Það gerir viðurkenning á vandanum ekki heldur. Hún er samt forsenda þess að eitthvað breytist og ráðherra hefur nú stigið það skref fyrir framan alla þjóðina. Í fjárlögum er gert ráð fyrir 600 milljóna viðbótarfjármagni í námsgagnaútgáfu. Það er skref í rétta átt og ráðherra segist binda miklar vonir við að nýta það vel. Þar liggur næsta stóra spurningin. Hvernig nýtum við það best? Íslenskt hugvit stendur tilbúið Á síðustu tveimur árum hefur lítið teymi í sprotafyrirtæki þróað yfir þúsund nýjar sögur fyrir yngsta stig grunnskóla. Það sýnir hvað nýjar aðferðir og ný tækni gera mögulegt. Verkefni sem áður tóku áratugi og kostuðu hundruð milljóna er nú hægt að leysa hraðar, ódýrar og í meiri gæðum en nokkru sinni fyrr. Sama á við víðar. Á Íslandi er fólk í fyrirtækjum, háskólum og skólum sem brennur fyrir læsi og hefur þekkingu og verkfæri til að leggja sitt af mörkum. Ráðuneytið þarf ekki að leysa þetta eitt og það á ekki að þurfa þess. Ef fjármagnið á að skila raunverulegum árangri þarf það að ná til fleiri en hefðbundinna útgefenda. Það þarf að skapa farveg fyrir nýsköpun, samstarf og tilraunir. Þar getur atvinnulífið létt undir með kerfinu í stað þess að standa á hliðarlínunni. Áhuginn er forsenda Eitt vil ég þó nefna við ráðherrann, ekki sem gagnrýni heldur sem viðbót. Ráðherra nefndi réttilega að lítið gagn sé í að þvinga barn til að lesa Snorra-Eddu þegar það skilur ekki textann. Þetta er lykilatriði. Læsi verður ekki til af námsbókum einum saman. Það verður til þegar barn vill lesa. Þess vegna þarf hluti af uppbyggingunni að snúa að lesefni sem börn velja sjálf. Efni sem vekur forvitni og heldur athygli þeirra á íslensku. Barn sem hefur gaman af lestri les meira. Barn sem les meira verður betri lesandi. Sama lið Ráðherra sagðist ekki hafa sest í stólinn nema til að bretta upp ermar. Gott og vel. Við erum mörg sem viljum bretta upp ermar með henni. Foreldrar, kennarar, skólastjórnendur, fyrirtæki og félagasamtök. Verkefnið er of stórt fyrir eitt ráðuneyti. En það er ekki of stórt fyrir okkur öll saman. Staðan er óafsakanleg. Hún er ekki óleysanleg. Höfundur er framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Revera og stofnandi Lesa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar