„Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar 11. júlí 2026 09:02 „Að deila og drottna“ (divide et impera) er gömul valdastefna sem gengur út á að halda fólki sundruðu svo það geti ekki sameinast. Ef hópur stendur saman er hann sterkur. Ef hann er klofinn verður auðveldara að stjórna honum. Undanfarið hefur þetta hugtak verið mér ofarlega í huga. Ég er nýkomin úr heimsókn til sonar míns. Ég fór ekki í frí. Ég fór vegna þess að ég þurfti að sækja honum meðferð sem er einfaldlega ekki í boði á Íslandi. Ég fór vegna raunverulegs kerfisvanda. Þess vegna á ég erfitt með að horfa upp á samfélagið festast mánuðum saman í deilum um tákn og fána á meðan stærri verkefni sitja eftir. Ég ætla ekki að dæma hvor fylkingin hefur rétt fyrir sér. Ég velti frekar fyrir mér hvort við séum öll farin að eyða svo mikilli orku í það sem sundrar okkur að við höfum minni orku í það sem sameinar okkur. Við eigum að geta verið ósammála af virðingu. En þegar umræðan verður að linnulausu skotgrafastríði gleymast spurningarnar sem skipta mestu máli. Af hverju er það ekki sjálfsagt að öll börn fái þá þjónustu sem lög kveða á um? Af hverju höfum við sætt okkur við geðheilbrigðiskerfi sem bregst bæði börnum og fullorðnum? Af hverju er heilbrigðiskerfið undir svona miklu álagi? Af hverju gleymum við öldruðum, fjölskyldum í vanda og þeim sem standa höllum fæti? Hvar týndist samkenndin? Ég trúi því ekki að lausnin felist í því að setja fólk í sífellt fleiri kassa. Ég trúi því að allir eigi sama tilverurétt, sömu mannréttindi og sömu reisn - óháð því hverjir þeir eru. Kannski hef ég rangt fyrir mér. Kannski er þetta bara hugleiðing miðaldra konu í örmögnun. En eitt veit ég. Ég hef ekki lengur áhuga á að taka þátt í umræðu sem skilar fyrst og fremst meiri sundrungu. Ég vil frekar taka þátt í umræðu sem spyr hvernig við getum tryggt að ekkert foreldri þurfi að fara með barn sitt úr landi til að bjarga lífi þess. Hvernig við getum byggt upp heilbrigðis- og geðheilbrigðiskerfi sem stendur undir nafni. Hvernig við getum skapað samfélag þar sem fólk er ekki fyrst og fremst skilgreint eftir fylkingum heldur eftir sameiginlegri mennsku. Við þurfum ekki að vera sammála um allt. En við þurfum að geta sameinast um það sem skiptir mestu máli. Kannski er kominn tími til að fá „fullorðna fólkið“ aftur inn í stofuna. Höfundur er móðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar