Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. júlí 2026 14:16 Margrét Valdimarsdóttir er dósent í félags- og afbrotafræði. Vísir/Arnar Afbrotafræðingur segir mögulegt að aðstoða og endurhæfa unga síbrotamenn. Mikilvægt sé að nota þann tíma sem þeir afplána til að veita þeim viðeigandi þjónustu. Veita þurfi þeim sem svara ekki meðferð þyngri dóma til að vernda almenning.
Vísir greindi frá því í gær að ungur maður sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald á dögunum, væri grunaður um að hafa framið sautján brot á síðastliðnu ári, meðal annars ofbeldi gegn móður sinni. Samkvæmt geðmati hefur maðurinn ekki sýnt neina iðrun vegna brota sinna og þá virðist möguleg fangelsisvist ekki hafa fælingarmátt. Í áhættumati lögreglu segir umtalsverðar líkur á að hann beiti lífshættulegu ofbeldi og að fórnarlömb hans væru nokkuð handahófskennd. Taka þurfi hættulega menn úr umferð Ungir síbrotamenn rata reglulega í fréttir og fréttastofa bar þá spurningu upp við Margréti Valdimarsdóttur afbrotafræðing hvernig yfirvöld ættu að taka á þeim. „Þrátt fyrir að fangelsisvist sé ekki skynsamlegasta valið fyrir unga gerendur almennt, þá fyrir ákveðinn hóp þarf að huga að því að það þarf að vernda almenning, að það þarf að taka suma úr umferð tímabundið af því að þeir eru hættulegir öðrum borgurum. Og þá skiptir mjög miklu máli að nýta tímann á meðan viðkomandi er að afplána dóm, til þess að reyna að hafa áhrif á hegðun, breyta hegðun, einhvers konar endurhæfing, sem getur virkað á mjög marga.“ Huga þurfi að því að vernda samfélagið Að sögn Margrétar dugar í sumum tilvikum að veita mönnum áfengis- og fíkniefnameðferð. Í öðrum tilvikum þurfi mikla sálfræðimeðferð og þá sé oft nauðsynlegt að hafa fjölskyldur með í vinnunni. En hvað með þau tilvik þar sem meðferð dugir ekki til og menn halda áfram að brjóta af sér? „Þrátt fyrir að ég tali almennt ekki fyrir þungum refsingum, þegar að við erum að tala um síbrot, þegar við erum að tala um fólk sem er trekk í trekk að beita samborgara sína ofbeldi, þá þurfa refsingarnar að þyngjast. Það þarf að taka tillit til þess að viðkomandi er að brjóta af sér aftur og aftur og þá skiptir bara máli að huga að því að vernda samfélagið.“
Dómsmál Fangelsismál Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira