Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson skrifar 10. júlí 2026 10:30 Hugleiðingar um vefumsjónarkerfi, hluti 1 af 2 Í aldarfjórðung hafa íslenskir vefir að stórum hluta byggt á kerfum sem voru smíðuð hér heima. LiSA hjá Advania frá 1997, Eplica hjá Hugsmiðjunni frá 2001 og Moya hjá Stefnu frá 2003, auk fleiri kerfa, þjónuðu um árabil hundruðum fyrirtækja og stofnana. Þetta tímabil er nú að renna sitt skeið á enda án þess að margir hafi tekið eftir því. Þróunin á fyllilega erindi í opinbera umræðu, því lærdómurinn varðar alla sem reka vef á Íslandi. Endalok tímabils og nýjar áherslur vefstofanna Staðreyndirnar tala sínu máli. Á vef Eplica kemur fram að nýsmíði og þróun kerfisins hafi verið hætt af hálfu Hugsmiðjunnar og að rekstri Eplica-vefja hafi lokið í ársbyrjun 2025. Kerfið, sem eitt sinn keyrði hundruð íslenskra vefsvæða og marga af stærstu vefum landsins, fékk þar með formlegan dánardag. Sömu sögu er að segja annars staðar frá, því Stefna kynnir nú alþjóðlega kerfið Craft CMS fyrir stærri vefverkefni og Moya er ekki lengur í forgrunni. Þá keyrir vefur Hugsmiðjunnar sjálfrar í dag á Payload, opnum alþjóðlegum hugbúnaði. Stofan sem varði tveimur áratugum í að þróa eigið kerfi valdi erlenda lausn þegar hún byggði sinn eigin vef upp á nýtt. Varnarmúrar og nýjar fjárfestingar á markaði Í ljósi þessarar þróunar vekur nýleg tímasetning Advania athygli, en þeir kynntu nýverið nýtt séríslenskt vefumsjónarkerfi, VEVA. Á sama tíma og reyndustu vefstofur landsins stíga út úr þessu módeli, hver af annarri og að vel athuguðu máli, ákveður Advania að fjárfesta í því. Ég ætla ekki að fullyrða um hvernig það fer, en vert er að skoða viðskiptamódelið sem slík kerfi byggja á. Viðskiptavinur sem velur lokað, séríslenskt kerfi bindur sig einni vefstofu um kerfi, þjónustu og hýsingu til margra ára, með tilheyrandi kostnaði. Þessi ákvörðun og fjárfesting viðskiptavinar er um leið helsti varnarmúr seljandans. Alþjóðleg samkeppni og uppgangur sjónrænna kerfa Íslensku kerfin dóu ekki vegna þess að þau væru illa gerð; Eplica var til að mynda á undan sinni samtíð í aðgengismálum. Þau dóu vegna þess að reikningsdæmið gekk hreinlega ekki lengur upp. Að halda úti samkeppnishæfu vefumsjónarkerfi árið 2026 þýðir að keppa við risa með hundruð þróunaraðila og milljarða í fjárfestingarfé. WordPress keyrir um 43 prósent allra vefsíðna í heiminum og danska kerfið Umbraco keyrir yfir 750 þúsund vefi. Þá eru svokölluð Headless-kerfi á borð við Sanity og Prismic í örum vexti á heimsvísu samkvæmt markaðsgreiningum, þótt leitargögn bendi til þess að áhugi Íslendinga sé enn takmarkaður. Mesta þróunin undanfarin ár hefur átt sér stað í sjónrænum kerfum, þar sem Framer hefur farið fremst og gögnin styðja þá þróun. Framer er sjónrænt vefumsjónarkerfi sem líkist Figma, er ofureinfalt í notkun og gerir teymum kleift að vinna saman í rauntíma þar sem athugasemdir fara beint á viðeigandi stað. Okkar reynsla er sú að þróun vefja í Framer sé um það bil þrisvar sinnum hraðari en í hefðbundnum vefumsjónarkerfum. Leitargögn frá Semrush sýna það sama, því af alþjóðlegum kerfum vex áhugi Íslendinga hraðast á Framer. Til gagnsæis skal þess getið að ég stofnaði Flóru, fyrstu vottuðu Framer Partner stofu landsins, en vinn samhliða í fjölda annarra vefumsjónarkerfa. Gervigreindin bindur enda á læsingu viðskiptavina Mesta breytingin á næstu árum lýtur að því að læsing viðskiptavina, sem hefur verið burðarás í viðskiptamódeli lokaðra kerfa í aldarfjórðung, er að gufa upp. Ástæðan er gervigreind. Það sem áður tók marga mánuði í handavinnu – að flytja allt efni af einum vef yfir á annan – er orðið að verkefni sem gervigreind leysir sjálfvirkt og með mikilli nákvæmni. Við höfum prófað slíka flutninga og árangurinn kemur skemmtilega á óvart. Eftir fáein ár verður enginn læstur inni í vefumsjónarkerfi því kostnaðurinn við að skipta verður hverfandi. Kerfin munu þurfa að keppa um viðskiptavini á grundvelli gæða og þjónustu frekar en skiptikostnaðar. Vefstofur munu sömuleiðis þurfa að vinna sér inn traust með enn betri þjónustu og samkeppnishæfu verði. Þetta er heilbrigð þróun fyrir markaðinn í heild. Vefurinn sem lifandi kerfi og breytt hlutverk vefstofa Horft fram á veginn tel ég að vefir hætti að vera afurð sem er „kláruð“ og afhent. Þess í stað verða þeir lifandi kerfi sem mæla sig sjálf, prófa sig áfram og taka stöðugum framförum. Þetta er einmitt hugmyndin á bak við Optise, framsækið gervigreindarfyrirtæki sem ég er meðstofnandi að. Við byggjum vefi sem betrumbæta sig sjálfir viku eftir viku og ég er sannfærður um að þessi nálgun verður sjálfsögð innan fárra ára. Samhliða þessu mun stór hluti vefumferðar færast frá hefðbundnum leitarvélum yfir í gervigreindaraðstoðarmenn. Vefir verða því í vaxandi mæli hannaðir fyrir tvo ólíka notendur: Manneskjuna og gervigreindina sem sækir upplýsingar fyrir hana. Við þetta breytist hlutverk vefstofa í grundvallaratriðum. Í stað þess að framleiða síður á færibandi munu stofur leggja aukna áherslu á sérstaka hönnun og dýpri efnissköpun, svo sem texta, myndir og myndbönd, sem skapa vörumerkjum sérstöðu. Vinnan færist nær kjarnarekstri fyrirtækja – í ferla, samþættingu kerfa, tiltekt í gögnum og aðgengismál, enda vinnur gervigreind aðeins vel úr skipulögðum upplýsingum. Ákvarðanir um vefi verða líka í mun ríkari mæli drifnar áfram af gögnum og gagnavinnslu á næstu árum. Er kominn tími á nýja vefsíðu? Fyrir þá sem þurfa nýja vefsíðu og þar af leiðandi velja nýtt vefumsjónarkerfi á næstunni er ráðlegging mín einföld. Byrjaðu á þörfunum, ekki kerfunum. Huga þarf að því hver á að uppfæra vefinn daglega, hvaða kerfum hann þarf að tengjast og hversu mörg tungumál hann þarf að styðja. Það síðastnefnda skiptir meira máli en margir átta sig á í samfélagi þar sem um fjórðungur íbúa talar ekki íslensku. Ég ráðlegg mínum samstarfsaðilum líka að festa sig ekki við tiltekið kerfi fyrr en hönnunarvinnan er hafin, því hún leiðir oft í ljós hvað kerfið þarf raunverulega að ráða við. Veldu svo kerfi þar sem þróunin hvílir á alþjóðlegum markaði en ekki á einum staðbundnum aðila, og gakktu úr skugga um að efnið þitt sé flytjanlegt ef forsendur breytast. Að lokum getur borgað sig að ráða óháðan vefráðgjafa sem hefur reynslu af markaðnum án þess að eiga hagsmuna að gæta í lokaniðurstöðunni. Fullorðinsár íslenska vefiðnaðarins Íslenski vefiðnaðurinn er ekki að minnka við þessi umskipti, hann er að þroskast. Verðmæti íslenskra vefstofa liggur ekki lengur í kerfunum sem þær eiga, heldur í fólkinu sem kann að hanna, greina og byggja ofan á bestu verkfæri heims. Séríslensku kerfin þjónuðu sínum tíma vel. En sá tími er liðinn. Í næstu grein kafa ég dýpra í gögnin: Hvaða vefumsjónarkerfi eru raunverulega mest notuð á Íslandi í dag, hver vaxa hraðast og hverjir eru helstu kostir og gallar þeirra kerfa sem standa íslenskum vefeigendum til boða. Höfundur er stofnandi og framkvæmdastjóri REVERA og meðstofnandi Optise. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar