Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Jón Þór Stefánsson skrifar 9. júlí 2026 23:35 Kristrún Frostadóttir og Donald Trump voru bæði á leiðtogafundi Nató. Á milli þeirra er Giorgia Meloni. EPA Ísland og norðurslóðir eru nú nokkuð í umræðunni í tengslum við leiðtogafund NATÓ sem fram fór í Tyrklandi. Sú áhersla hefur aukist verulega og mun aukast á næstunni að sögn Alberts Jónssonar, sérfræðings í alþjóðastjórnmálum, nú þegar hafísinn hörfar og aðgengi eykst. „
Bandaríkin eru eina NATÓ ríkið sem mun geta gert sig gildandi, svo einhverju máli skiptir, á norðurslóðum. Ísland er náinn bandamaður Bandaríkjanna. Og horfðu svo á landakortið, þá sérðu það, eins og Bandarísk stjórnvöld segja: Ísland er aðkomuleið okkar að norðurslóðum,“ sagði Albert í kvöldfréttum Sýnar. „Við munum verða vör við þetta hlutverk, ef svo má orða það. Það mun þá aukast.“ Hann telur að leiðtogafundurinn hafi farið vel fram. „Það er almennt litið svo á sýnist mér að fundurinn hafi heppnast vel, hvað þennan samstöðuþátt varðaði, það vantaði upp á það eftir það sem á undan gekk, en það tókst mjög vel. Þarna eru ítrekaðar og staðfestar grundvallarskuldbindingar bandalagsríkjanna,“ sagði hann. „Annað sem er mjög merkilegt er að í yfirlýsingu fundarins birtist beinlínis samkomulag um að Evrópuríkin og Kanada beri meiri ábyrgð á vörnum bandalagsins, vörnum Evrópu. Þarna hefur tekist að snúa við áratugalangri sögu núnings og leiðinda og deilna í bandalaginu sem stafa af því að Bandaríkin hafa þurft að taka á sig hlutfallslega meiri byrgðar af því að halda bandalaginu gangandi,“ sagði Albert og tók fram að það sé gert fyrir tilstilli Trumps, en líka vegna stríðsins í Úkraínu. Jafnframt segir Albert að NATÓ sé að breytast í takt við breytingar á heimsmyndinni þar sem þungamiðjan sé að færast til Asíu og Kyrrahafsins, frá Evrópu og Atlantshafi. Aðspurður um Grænland sagði Albert: „Grænland skiptir feykilega miklu máli fyrir öryggi Bandaríkjanna, og ekki bara það heldur líka fyrir öryggi bandamanna Bandaríkjanna, og afhverju? Nyrst í Grænlandi er herstöð sem heitir á grænlensku Pituffik, og hét áður Thule. Þar eru stórar ratsjárstöðvar sem horfa yfir pólinn á Rússland. Þessar stöðvar eiga að vara við hugsanlegri eldflaugaárás frá Rússlandi á Norður-Ameríku,” segir Albert. Nú vilji Bandaríkin auka loftvarnir sínar þar, og eru að ræða við Grænland og Danmörku um það. Trump tali þó um yfirráð yfir Grænlandi. „Hann beitti mjög ósmekklegum hótunum á tímabili, sem mér þótti nú aldrei trúverðugar og voru líklega ekki settar fram í alvöru, um valdbeitingu, en nú er hann meira að tala um að kaupa Grænland. Tilgátan er sú að hann vilji verða sá forseti sem bætti Grænlandi við Bandaríkin með sama hætti og Andrew Jackson bætti Alaska við Bandaríkin.“
Norðurslóðir Bandaríkin Rússland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Grænland Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Skilorð fyrir að tvíkjálkabrjóta sambýliskonu sína Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar Sjá meira