Viðskipti innlent

Rammagerðin leitar nauða­samninga

Árni Sæberg skrifar
Stærsta verslun Rammagerðarinnar er í gamla Kirkjuhúsinu á Laugavegi.
Stærsta verslun Rammagerðarinnar er í gamla Kirkjuhúsinu á Laugavegi. Vísir/Ívar Fannar

Rammagerðin ehf., sem rekur samnefndar gjafavöruverslanir, hefur fengið heimild til að leita nauðasamninga við lánardrottna sína. Markmið nauðasamnings er að ráða bót á ógjaldfærni skuldara og þá einkum með því að lækka skuldir þannig að skuldari verði frekar fær um að standa í skilum.

Í innköllun þess efnis í Lögbirtingablaðinu, sem birt var í gær, segir að með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, uppkveðnum 2. júlí síðastliðinn, hafi Rammagerðinni verið veitt heimild til að leita nauðasamninga samkvæmt ákvæðum laga um gjaldþrotaskipti o.fl.

Skorað sé á alla þá, sem telja sig eiga samningskröfur á hendur Rammagerðinni, að lýsa kröfum sínum fyrir umsjónarmanni með nauðasamningaumleitunum félagsins innan fjögurra vikna frá birtingu innköllunarinnar. Kröfulýsingar skuli sendar LLG Lögmönnum ehf.

Getur bundið lánardrottna sem samþykkja ekki

Með nauðasamningi samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti og fleira er átt við samning um greiðslu skulda eða eftirgjöf af skuldum sem kemst á milli skuldarans og áskilins meiri hluta lánardrottna hans og hlýtur síðan staðfestingu fyrir dómi. Nauðasamningur, sem þannig er gerður, bindur einnig aðra lánardrottna skuldarans eftir því sem nánar er mælt fyrir í lögunum.

Á vef Skattsins segir að markmið nauðasamnings sé að ráða bót á ógjaldfærni skuldara og þá einkum með því að lækka skuldir þannig að skuldari verði frekar fær um að standa í skilum.

Deila um leigu vakti athygli

Rammagerðin rekur nokkurn fjölda gjafaverslana, meðal annars í gamla Kirkjuhúsinu á Laugavegi og í Leifsstöð. Verslun félagsins í Leifstöð rataði í fréttir nýlega vegna deilna Rammagerðarinnar og Isavia um leigu.

Rammagerðin er í eigu hjónanna Helga Rúnars Óskarssonar og Bjarneyjar Harðardóttur. Þau eru einnig aðaleigendur 66° Norður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×