Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar 8. júlí 2026 17:30 Nýjustu markaðsupplýsingar sýna áhugaverða stöðu. Verð á skammtímamarkaði Elmu fór í dag upp í rúmlega 70 ISK/kWst sem er áttfalt heimilisverð og jafnframt margfalt hærra en verð á sambærilegum mörkuðum í Evrópu — jafnvel um hásumar, á tíma þar sem almennt ætti að vera nægt afl og orka í kerfinu. Í litlu raforkukerfi eins og á Íslandi er óraunhæft að ætla að markaður leysi allt einn og sér. Markaður virkar best þegar hann hefur næga dýpt og samkeppni. Við þurfum að horfast í augu við að íslenski raforkumarkaðurinn er lítill og samþjappaður. Landsvirkjun er langstærsti framleiðandinn og miðlunarlónin eru í raun rafhlaða íslenska raforkukerfisins. Áður voru raforkuviðskipti skipulögð fram í tíman í form í tvíhliða samninga. Í dag fara viðskipti fram í auknum mæli í gegnum markað. Það hefur kosti en skapar líka ný vandamál. Þar er sem mikilvægt er að tryggja afl og getu til að flytja orku. Þá má einnig nefna að ef aðeins fáir framleiðendur eru virkir á söluhlið markaðarins getur myndast staða þar sem markaðurinn verður grunnur og viðkvæmur þegar eitthvað kemur upp. Þess vegna skiptir máli að sem mest af raforkuviðskiptum fari fram með gagnsæjum hætti í gegnum markað, þannig að raunveruleg dýpt og samkeppni myndist á framleiðsluhliðinni.Sérstaklega má færa rök fyrir því að orka frá fyrirtækjum í opinberri eigu, sem fer inn á almenna dreifikerfið (þ.e. er ekki í stóriðju), ætti öll að fara í gegnum markað. Það myndi styrkja verðmyndun, auka samkeppni og hjálpa til við að byggja upp dýpri og virkari raforkumarkað. Þetta snýst ekki um að gagnrýna markaðinn eða einstaka aðila. Þetta snýst um að nýta orkukerfið og orkuauðlindir Íslands betur — og byggja lausnir sem henta Íslandi. Það er spennandi að fá að fylgjast með og taka þátt í þróun kerfisins. Höfundur er stofnandi og framkvæmdastjóri Straumlindar og er með MSc í orkuverkfræði og BSc í rekstrarverkfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Nýjustu markaðsupplýsingar sýna áhugaverða stöðu. Verð á skammtímamarkaði Elmu fór í dag upp í rúmlega 70 ISK/kWst sem er áttfalt heimilisverð og jafnframt margfalt hærra en verð á sambærilegum mörkuðum í Evrópu — jafnvel um hásumar, á tíma þar sem almennt ætti að vera nægt afl og orka í kerfinu. Í litlu raforkukerfi eins og á Íslandi er óraunhæft að ætla að markaður leysi allt einn og sér. Markaður virkar best þegar hann hefur næga dýpt og samkeppni. Við þurfum að horfast í augu við að íslenski raforkumarkaðurinn er lítill og samþjappaður. Landsvirkjun er langstærsti framleiðandinn og miðlunarlónin eru í raun rafhlaða íslenska raforkukerfisins. Áður voru raforkuviðskipti skipulögð fram í tíman í form í tvíhliða samninga. Í dag fara viðskipti fram í auknum mæli í gegnum markað. Það hefur kosti en skapar líka ný vandamál. Þar er sem mikilvægt er að tryggja afl og getu til að flytja orku. Þá má einnig nefna að ef aðeins fáir framleiðendur eru virkir á söluhlið markaðarins getur myndast staða þar sem markaðurinn verður grunnur og viðkvæmur þegar eitthvað kemur upp. Þess vegna skiptir máli að sem mest af raforkuviðskiptum fari fram með gagnsæjum hætti í gegnum markað, þannig að raunveruleg dýpt og samkeppni myndist á framleiðsluhliðinni.Sérstaklega má færa rök fyrir því að orka frá fyrirtækjum í opinberri eigu, sem fer inn á almenna dreifikerfið (þ.e. er ekki í stóriðju), ætti öll að fara í gegnum markað. Það myndi styrkja verðmyndun, auka samkeppni og hjálpa til við að byggja upp dýpri og virkari raforkumarkað. Þetta snýst ekki um að gagnrýna markaðinn eða einstaka aðila. Þetta snýst um að nýta orkukerfið og orkuauðlindir Íslands betur — og byggja lausnir sem henta Íslandi. Það er spennandi að fá að fylgjast með og taka þátt í þróun kerfisins. Höfundur er stofnandi og framkvæmdastjóri Straumlindar og er með MSc í orkuverkfræði og BSc í rekstrarverkfræði.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar