Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Kjartan Kjartansson skrifar 7. júlí 2026 11:58 Lögreglumaður gengur fram hjá inngangi húss í Mónakó þar sem sprengja var sprengd í síðasta mánuði. Meint tilræðiskona er sögð fundin myrt í Úkraínu. Vísir/EPA Úkraínsk kona sem er eftirlýst vegna sprengjutilræðis í Mónakó fannst látin í Úkraínu. Leyniþjónustumaður er sagður hafa ráðið henni bana að eigin frumkvæði.
Alþjóðalögreglan Interpol lýsti eftir Anastasiiu Berezovsku í tengslum við sprengjutilræði gegn úkraínskum auðkýfing og fjölskyldu hans í Mónakó 29. júní. Hún var grunuð um morðtilraun og að koma sprengju fyrir á opinberum stað. Nú segir úkraínska leyniþjónustan SBU að lík Berezovsku sé fundið. Leyniþjónustumaður í herleyniþjónustunni hafi játað að hafa myrt hana í slagtogi við fyrrverandi lögreglumann. Sá grunaði segist hafa myrt konuna að eigin frumkvæði og án þess að upplýsa yfirmenn sína um það. Skjáskot af eftirlýsingu á Anastasiiu Berezovsku á vefsíðu Interpol. Hún er talin hafa dulbúið sig sem karlmann þegar hún fylgdist með úkraínskum auðkýifingi í Mónakó áður en hún sprengdi sprengju við íbúð hans.AP/Interpol Böndin eru sögð hafa beinst að leyniþjónustumanninum og hjálparhellu hans eftir að rannsakendur uppgötvuðu að þeir hefðu millifært bæði rafmynt og fé inn á bankareikninga Berezovsku. Við húsleit fannst kjallari sem líktist pyntingaklefa heima hjá fyrrverandi lögreglumanninum, að sögn leyniþjónustunnar. Lík Berezovsku fannst í kjölfarið. Hún hafði verið skotin í höfuðuð, að því er kemur fram í frétt AP-fréttastofunnar. Leyniþjónustan segist hafa deilt öllum gögnum sem hún hefur aflað með rannsakendum í furstadæminu og að enn sé unnið að því að finna þá sem skipuðu fyrir um og skipulögðu tilræðið þar. Skotmark tilræðisins var Vadym Jermolajev, úkraínskur auðkýfingur úr byggingargeiranum. Úkraínsk stjórnvöld beittu hann þvingunaraðgerðum vegna tengsla við Rússland árið 2023. Auk Jermolajev særðist kona hans og barn í sprengingunni.
Mónakó Úkraína Erlend sakamál Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira