Matthías kominn á áfangaheimili Agnar Már Másson skrifar 6. júlí 2026 11:10 Matthías Björn var sakfelldur ásamt þeim Stefáni Blackburn og Lúkasi Geir Ingvasyni fyrir að hafa myrt hinn 65 ára Hjörleif Hauk Guðmundsson bana hinn 10. mars 2025. Vísir Einn sakborninganna í Gufunesmálinu afplánar það sem eftir er af tólf ára dóms sínum utan fangelsis á áfangaheimilinu Vernd. Verjandi hans segir að ef allt gengur upp fari hann líklega á ökklaband.
Að meðtöldu gæsluvarðhaldi frá mars 2025 hefur hinn tvítugi Matthías Björn Erlingsson þegar setið rúmlega ár af tólf ára fangelsisvist samkvæmt dómi Landsréttar, sem mildaði fjórtán ára dóm héraðsdóms yfir honum niður í tólf ár. Hann var sakfelldur ásamt þeim Stefáni Blackburn og Lúkasi Geir Ingvasyni fyrir að hafa myrt hinn 65 ára Hjörleif Hauk Guðmundsson hinn 10. mars 2025. Verjandi Matthíasar, Sævar Þór Jónsson, staðfestir í samtali við fréttastofu að Matthías hafi farið á Vernd hinn 29. júní en DV greindi fyrst frá málinu með vísan í sínar heimildir. „Hann hafði sótt um að fá að hluta af dómnum þar, af því að eftir Vernd fer hann, líklega á ökklaband ef allt gengur upp,“ segir Sævar.Þetta sé meðal annars gert vegna þess að hann sé ungur að árum og ekki með frekari sakaferil að baki.„Hlutfallstíminn er náttúrulega í samræmi við það, þannig að þetta er í raun og veru bara hans réttur og það eru til mörg dæmi um þetta, sérstaklega varðandi unga afbrotamenn.“Hann gangi þó ekki frjáls.„Það er auðvitað fylgst með honum og hann þarf að uppfylla ákveðin skilyrði, verandi í þessu úrræði, sem er náttúrulega bara til þess gert að reyna að byggja hann upp og koma honum aftur inn í samfélagið.“„Eitt af þeim skilyrðum er að hann þarf að sinna vinnu og vera til staðar, á ákveðnum tíma og ákveðnum stað.“Sævar Þór Jónsson var verjandi Matthíasar Björns Erlingssonar í málinu.Vísir/VilhelmEinstaklingur sem dvelur á áfangaheimili Verndar skal, samkvæmt upplýsingum á vef Fangelsismálastofnunar, dvelja á áfangaheimilinu milli kl. 23–7 alla daga vikunnar. Þar að auki skal hann vera á heimilinu milli kl. 18–19 virka daga og fylgja öllum húsreglum sem þar gilda. Jafnframt ber þeim sem þar búa að stunda vinnu, nám, starfsþjálfun eða meðferð sem forsvarsmenn Verndar hafa samþykkt.Sævar kveðst ekki geta sagt til um það hvort hinir tveir sakborningarnir, Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson, sem einnig voru sakfelldir í málinu, fái svipaða meðferð. Hann ítrekar aftur á móti að til þess að komast inn á Vernd þurfi maður að vera með stuttan sakaferil, en hinir tveir hafa báðir fleiri dóma á bakinu.„Ég get ekki sagt til um hina sakborningana vegna þess að ég veit voða lítið um þeirra stöðu. Nú eru þeir búnir að áfrýja þessum dómi til Hæstaréttar og við vitum ekkert hver niðurstaðan af því verður,“ segir Sævar.„En allir þeir sem eru að afplána á Íslandi geta auðvitað sótt um svona úrræði en svo er það bara spurningin hvort þeir uppfylli þau skilyrði sem sett eru fyrir því og það fer eftir þyngd dóma.“
Manndráp í Gufunesi Dómsmál Fangelsismál Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira