Skera niður hjá stelpunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. júlí 2026 07:02 Leikmenn Southampton fagna góðum sigri á síðustu leiktíð en það herðir að á komandi leiktíð. Getty/Leila Coker Þetta hafa ekki verið góðir mánuðir fyrir Southampton þegar kemur að almenningsálitinu en enska fótboltafélagið fylgdi eftir njósnamálinu mikla með fréttum að félagið ætli að spara hjá kvennastarfi félagsins.
Það er ekki hægt að segja annað en að gríðarlega svekkjandi fréttir berist frá Southampton. The Athletic greinir frá því að Southampton ætli að gera verulegan niðurskurð í starfi kvenna- og stúlknaliða sinna. Búist er við að um hundrað þúsund pund af þessum niðurskurði muni hafa bein áhrif á aðalliðið. Southampton to significantly cut budget to women’s/girls’ programme + exit of SD Spacey-Kale, St Mary’s no longer home ground + academy drop to Cat 2. Decision made before Spygate scandal. Concerns re: return on investment for reaching WSL. @TheAthleticFC https://t.co/43EbhgnHVV— Megan Feringa (@megan_feringa) July 3, 2026 Alls er talið að niðurskurðurinn nemi hálfri milljón punda eða meira en 84 milljónum í íslenskum krónum. Annað stórt áfall er að liðið mun að sögn hætta að spila á St Mary's-leikvanginum og flestir heimaleikir munu þess í stað fara fram á Silverlake-leikvanginum í Eastleigh. Karlaliðið spilar leiki sína áfram á St. Mary's-leikvanginum. Til viðbótar við það er einnig sagt að Marieanne Spacey-Cale, yfirmaður kvenna- og stúlknafótboltans, sem hefur gegnt stóru hlutverki í umbreytingu félagsins frá því hún gekk til liðs við það árið 2018, muni segja af sér. Þetta eru skrýtnar fréttir á sama tíma og kvennafótboltinn heldur áfram að vaxa og dafna. Karlaliðið var nálægt því að komast upp í úrvalsdeildina í vor. Liðið lauk keppnistímabilinu 2025–26 í fjórða sæti og sigraði Middlesbrough 2–1 samanlagt í undanúrslitum umspilsins. Leikurinn var umdeildur eftir að greinandi frá Southampton sást taka upp æfingu Middlesbrough tveimur dögum fyrir fyrri leikinn, sem var brot á reglum deildarinnar. Þann 19. maí 2026, eftir yfirheyrslu hjá óháðri aganefnd EFL, var félaginu vísað úr úrslitaleik umspils ensku meistaradeildarinnar 2026 og Middlesbrough tók sæti þess í úrslitaleiknum gegn Hull City. Talið var að brottvísunin myndi kosta félagið allt að tvö hundruð milljónir punda í tapaðar tekjur af því að komast upp í ensku úrvalsdeildina og tengdar viðskiptatekjur. Í yfirheyrslum vegna njósnamálsins viðurkenndi félagið einnig að hafa njósnað um æfingar Ipswich Town og Oxford United. Félaginu var einnig refsað með fjögurra stiga frádrætti fyrir keppnistímabilið 2026–27 í ensku meistaradeildinni. Það lítur út fyrir að svindl karlaliðsins bitni núna á konunum í félaginu. View this post on Instagram A post shared by SHE’S A BALLER! (@shesaballer)
Enski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn „Gangandi martröð“ Enski boltinn Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira