Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júlí 2026 19:33 Cally Queen Togiai skoraði tvö mörk fyrir HK í dag og er komin með tíu mörk í Lengjudeild kvenna í sumar. HK fótbolti Völsungur skoraði mörkin í bæði Lengjudeild karla og Lengjudeild kvenna í fótbolta í dag en uppskeran var heldur rýr. Karlarnir náðu jafntefli á móti Leikni en konurnar töpuðu á móti HK.
Karlalið Völsungs skoraði þrjú mörk á útivelli á móti Leikni en varð að sætta sig við eitt stig í 3-3 jafntefli. Völsungurinn Tryggvi Grani Jóhannsson tryggði sínu liði stig með marki í uppbótartíma. Gestur Aron Sörensson kom Völsungi í 1-0 en Anton Fannar Kjartansson jafnaði fyrir Leikni í lok fyrri hálfleiks. Elfar Árni Aðalsteinsson kom Völsungi aftur yfir í upphafi seinni hálfleiks en Leiknismenn svöruðu með tveimur mörkum á sjö mínútum. Gísli Alexander Ágústsson og Dagur Ingi Hammer Gunnarsson skoruðu. Það stefndi í Leiknissigur þegar varamaðurinn Tryggvi Grani jafnaði í blálokin. Leiknir er í 5. sæti með 19 stig en Völsungur er í næstneðsta sæti með 8 stig. Þetta var fimmta jafntefli Húsvíkinga í tólf leikjum en liðið hefur bara unnið einn leik. Kvennalið Völsungs skoraði líka þrjú mörk en varð að sætta sig við 3–4 tap á heimavelli á móti HK. Maria Fernanda Contreras Munoz, Ísabella Anna Kjartansdóttir og Hildur Laila Hákonardóttir skoruðu fyrir Völsung en öll mörkin komu í seinni hálfleiknum. Cally Queen Togiai og Alma Mathiesen komu HK í 2-0 í fyrri hálfleik, Cally bætti svo við öðru marki sínu á 59. mínútu en Eydís Helgadóttir skoraði svo sigurmarkið eftir að Völsungskonum hafði tekist að jafna metin. HK er í 4. sæti Lengjudeildar kvenna með 13 stig en þetta var þriðji sigur liðsins í röð. Völsungur er með 8 stig í 7. sæti.
Lengjudeild karla Lengjudeild kvenna Völsungur HK Leiknir Reykjavík Mest lesið Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Íslenski boltinn Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Íslenski boltinn Björgvin Karl vann sitt þriðja brons á heimsleikunum Sport Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport Kláraði Harvard og samdi við Blika Íslenski boltinn „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Jóhannes Karl: Strákarnir eiga skilið frí yfir helgina Íslenski boltinn Fleiri fréttir Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Jóhannes Karl: Strákarnir eiga skilið frí yfir helgina Uppgjörið: ÍA-Stjarnan 5-1 | Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Uppgjörið: FH-Fram 0-0 | Mörg mörk síðast en ekkert í kvöld Kláraði Harvard og samdi við Blika Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Sjá meira