Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Sigurgeir Þorkelsson skrifar 4. júlí 2026 15:31 Hitamet var slegið í Washington D.C. sem staðið hafði frá árinu 1872. Getty Mikið er um dýrðir í Bandaríkjunum í dag þar sem landsmenn fagna þjóðhátíðardegi sínum, kenndum við fjórða júlí. Þá fer þar einnig fram Heimsmeistaramót karla í knattspyrnu. Í landinu geisar þó skæð hitabylgja sem útlit er fyrir að setji strik í reikninginn þegar kemur að fagnaðarhöldum.
Hátíðarhöld eru sérlega vegleg í ár þar sem Bandaríkin fagna því að tvö hundruð og fimmtíu ár eru liðin frá sjálfstæðisyfirlýsingu þeirra. Víða hefur þurft að aflýsa viðburðum sem fara áttu fram í tilefni þjóðhátíðardagsins vegna gífurlegs hita, þar á meðal skrúðgöngu sem átti að fara fram í Fíladelfíu á austurströnd Bandaríkjanna í gær. Búist er við að hiti þar nái þrjátíu og níu gráðum síðdegis. Hiti mun í dag vera frá þrjátíu og fimm gráðum og upp á gjörvallri austurströnd Bandaríkjanna. „Hættulegur hiti verður á gestalistanum í öllum fögnuði tengdum fjórða júlí í dag,“ segir í umfjöllun CNN um málið og rifjað er upp að þegar skrifað var undir sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna í Fíladelfíu-borg þann fjórða júlí árið 1776 mældi Thomas Jefferson hitastig upp á 24,4 gráður. Eiganda þessarar húfu varð að ósk sinni. Getty Veðurviðvaranir vegna hita voru í gær í gildi á svæðum þar sem búa 185 milljónir Bandaríkjamanna og staðarhitamet hafa fallið víða í landinu austan- og norðaustanverðu síðustu daga. Gömul hitamet voru á fimmtudag jöfnuð bæði í Fíladelfíu og New York-borg. Hið gamla met Fíladelfíu var meira en aldargamalt, frá 1901. Hitahvelfing skelfir Svipaðar aðstæður eru nú uppi og voru í Evrópu síðustu vikur en svokölluð hitahvelfing hefur myndast yfir Bandaríkjunum. Hún lýsir sér þannig að veðurhæð staðsett yfir Bandaríkjunum suðaustanverðum heldur inni hitanum, sem síðan heldur áfram að byggjast upp inni í veðurkerfinu. Hiti hefur mælst yfir 37 gráður síðustu daga í New York.Getty Rúmlega aldargömul met ýmist jöfnuð eða slegin Í höfuðborginni, Washington D.C., var í gær slegið hitamet frá árinu 1872 þegar hiti náði 38,9 gráðum. Stóru hátíðarsvæði hefur verið komið upp í borginni þar sem hvert hinna fimmtíu ríkja Bandaríkjanna á svæði tileinkað sér. Ákveðið var að loka hátíðarsvæðinu í gær þegar hiti náði hundrað gráðum á fahrenheit-kvarða, eða 37,8 gráðum á selsíus. Þá höfðu ellefu manns þegar verið flutt á sjúkrastofnanir til nánari aðhlynningar. Hátíðarsvæðið var opnað á ný klukkan fimm síðdegis eftir að hafa verið lokað í fjóra tíma. Í dag hefur skrúðganga sem fara átti fram í borginni verið slegin af og opnun hátíðarsvæðisins verið frestað um tvær klukkustundir. Hoover-stíflan, eitt af þekktari kennileitum Bandaríkjanna, var klædd í hátíðarbúning í tilefni afmælisins. Getty Síðdegis má búast við að þrumuveður taki við í mollunni miklu. Mun það setja strik í reikninginn fyrir þá sem hugðust kæla sig í vatni eða taka þátt í hátíðarhöldum utandyra. Þá gæti það einnig eyðilagt fyrirhugaðar flugeldasýningar ef stormasamt verður áfram í kvöld. Áhrif hitabylgjunnar eru víðtæk. Samkvæmt ABC News eru tæplega milljón manns án rafmagns og fella hefur þurft niður tugi lestarferða í norðausturhluta landsins síðustu daga. Heimsmeistaramót karla fær að finna fyrir hitanum Hitabylgjan hefur einnig áhrif á Heimsmeistaramót karla í fótbolta og eru uppi áhyggjur af því að leikir verði leiknir við hættulegar aðstæður fyrir leikmenn, með tilliti til hitans. Hættulegt getur verið að stunda líkamlega áreynslu þegar hiti er kominn yfir þrjátíu og tvær gráður, en þá hættir líkaminn að geta kælt sig sjálfur niður náttúrulega. Þegar hefur bætt drykkjarpásum inn í leikina. Hitabylgjan hefur vakið umræður um áhrif loftslagsbreytinga og hlýnandi jarðar á daglegt líf fólks.
Bandaríkin Loftslagsmál Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira