„Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 2. júlí 2026 22:09 Aron Elís Þrándarson skoraði tvö mörk fyrir Víkinga í kvöld. vísir/Diego Víkingur vann frábæran endurkomu sigur á KA í kvöld þegar liðin mættust á Víkingsvelli í 13. umferð Bestu deild karla. Eftir að hafa verið undir 1-2 í hálfleik snéru þeir taflinu við í seinni hálfleik og unnu góðan 3-2 sigur. Aron Elís Þrándarson ræddi við Vísi eftir leik. „
Við byrjum þetta vel og skorum en svo fara menn aðeins í smá kósí og gera ekki vinnuna eins og við eigum að gera“ sagði Aron Elís Þrándarson leikmaður Víkings en hann skoraði tvö mörk fyrir sína menn í kvöld. „Þá koma KA-menn bara inn í þetta og komast yfir. Eftir það tók smá tíma að komast í gang en mér fannst seinustu þrjátíu við alveg vera með þá og lágum á þeim vel og unnum þetta að lokum“ Víkingar komust yfir á 5. mínútu leiksins en KA skoraði næstu tvö mörk og leiddu í hálfleik. „Menn voru ekki sáttir með fyrri hálfleikinn. Við erum á heimavelli og þetta var ekki boðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Við skerptum aðeins á hlutunum og það var enginn örvænting eða neitt svoleiðis, það voru enn 45 mín eftir þannig við tókum því rólega og fórum aðeins yfir hlutina og kláruðum þetta svo í seinni“ Víkingur þjarmaði að marki KA áður en stíflan loks brast og Víkingar fóru að lokum með sigur en þeir þurftu að hafa vel fyrir honum. „Þetta bara gerir mikið fyrir okkur. Við vissum það alveg að yfir heila deild þá ferðu ekkert í gegnum alla leiki 3-0 yfir og bara í kósíheitum“ „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu og við gerðum það í dag. Mér fannst við vera þolinmóðir og enginn örvænting þó að þetta hafi komið seint“ Þessi sigur gefur Víkingum mikið fyrir framhaldið en þeir eru á leið í Evrópuverkefni á næstu dögum. „Þetta er risastórt fyrir okkur að fá einn svona sigur. Þetta er aðeins öðruvísi sigur en við höfum verið að vinna. Við höfum meira verið svona að sigla sigrunum og við sóttum þennan aðeins og það er bara stórt“ Það má kalla þetta meistarasigur hjá Víkingum í kvöld. „Menn mega bara kalla þetta það sem þeir vilja. Nú er það bara Evrópa og gríðarlega mikilvægt að fara með sigur inn í það verkefni“ sagði Aron Elís Þrándarson.
Víkingur Reykjavík Fótbolti Besta deild karla Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira