Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. júlí 2026 13:40 Stór gígur er við hlið íbúðarhússins. AP Að minnsta kosti átján eru látnir eftir að Rússar gerðu umfangsmikla árás á höfuðborg Úkraínu. Borgarstjóri segir að um sé að ræða stærstu árás Rússa á borgina frá upphafi átakanna.
Nokkur hverfi voru rýmd þegar árásir skóku Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Tvær flaugar höfnuðu á íbúðahverfi í Darnitskyi-hverfinu og ollu gríðarlegri eyðileggingu samkvæmt umfjöllun BBC. Risastór gígur varð við hliðina á leikskóla og hafa byggingar brunnið til kaldra kola. Sjúkrabílastöð var meðal bygginga sem urðu fyrir árás. Árásirnar stóðu yfir í meira en ellefu klukkustundir og komu í nokkrum bylgjum. Klukkan eitt um nótt á staðartíma var tugum skotflauga og stýriflauga skotið á loft. Tugur annarra stýriflauga fylgdi klukkan þrjú og enn önnur árás í morgunsárið. Vitaly Klitschko lýsti því yfir að föstudagur yrði sorgardagur. Um níutíu manns hefðu særst í árásunum og voru mörg börn meðal látinna samkvæmt Tymur Tkachenko, yfirmanni hernaðarstjórnar Kænugarðs. Klitschko taldi að þrátt fyrir að fleiri hefðu látist í fyrri árásum hefði mestum fjölda vopna verið beitt gegn höfuðborginni í þessari árás. Skotmörkin hafi verið á mjög víðfemu svæði í Kænugarði. Úkraínumenn sögðu að Rússar hefðu skotið 74 flaugum og 496 drónum á loft yfir nóttina. Loftvarnir landsins skutu niður flesta en lentu 25 skotflaugar og tólf drónar á 33 stöðum. Rússar sögðust hafa verið að ráðast á hernaðarverksmiðjur í hefndarskyni fyrir árásir á borgaralega innviði í Rússlandi.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Mest lesið Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Gular viðvaranir á morgun Veður Fleiri fréttir Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Sjá meira