Vatnaskil í markaðssetningu Íslands Pétur Þ. Óskarsson skrifar 30. júní 2026 11:02 Í síðustu viku ákváðu íslensk stjórnvöld að verja 630 milljónum á þessu ári til markaðssetningar áfangastaðarins Íslands og skrifaði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra undir samning þess efnis. Ákvörðunin er í samræmi við bæði nýsamþykkta atvinnustefnu Íslands og áður samþykkta langtímastefnu fyrir íslenska ferðaþjónustu, þar sem skilvirk og viðvarandi markaðssetning áfangastaðarins er skilgreind sem lykilaðgerð til að styðja við sjálfbæra þróun greinarinnar. Ákvörðunin markar vatnaskil fyrir íslenska ferðaþjónustu. Í fyrsta sinn er verið að samþykkja að fjármagna markaðsstarf í samræmi við langtímastefnumótun greinarinnar, fremur en að fjármagna markaðsaðgerðir sem skammtímaviðbragð við ytri áföllum. Þetta stuðlar að betri nýtingu fjármuna og skilvirkari aðgerðum til skemmri og lengri tíma. Markaðssetning er öflugt stjórntæki sem getur stutt við þróun og uppbyggingu ferðaþjónustu í samræmi við langtímaáætlanir. Við viljum minnka árstíðasveiflu og stuðla að því að ferðamenn ferðist um allt Ísland. Markaðssetning er eitt öflugasta verkfærið sem stjórnvöld hafa til að hafa áhrif á þá þróun. Áhrif markaðssetningar felast bæði í skilaboðum og tímasetningum. Með því að leggja áherslu á framboð vetrarferðaþjónustu í markaðsefni, s.s. menningu, mat og norðurljós, má skapa breiðari ímynd áfangastaðarins. Með því að leggja áherslu á minna þekkta viðkomustaði frekar en vinsælustu náttúruperlurnar má auka vitund um áfangastaðinn. Með því að tímasetja markaðsstarf til þess að sækja á réttan markhóp á réttum tíma og á réttum vettvangi er hægt að hafa áhrif á bæði ferðatíma og hegðun ferðamanna. En slík markaðssetning er kostnaðarsöm, og einstök fyrirtæki geta eðli máls samkvæmt ekki borið hana ein. Þess vegna hafa flest samkeppnislönd Íslands kosið þessa leið. Íslensk ferðaþjónustufyrirtæki verja miklum fjármunum í markaðsstarf og leggja þannig sitt af mörkum til að kynna Ísland. Uppbygging vörumerkisins Ísland, ímyndar landsins og almennrar eftirspurnar er hins vegar dæmi um almannagæði þar sem greinin öll nýtur ávinningsins þegar ímynd landsins styrkist. Vörumerkjastjórnun áfangastaðarins þarf að byggja á hagsmunum greinarinnar og samfélagsins í heild og því er nauðsynlegt að hið opinbera leiði það starf í nánu samstarfi við atvinnulífið. Markaðsstarf Íslandsstofu fyrir áfangastaðinn Ísland hefur það hlutverk að styrkja ímynd og auka eftirspurn eftir áfangastaðnum. Þar með skapast tækifæri fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki til að fylgja fast á eftir með sínu sölustarfi til að breyta eftirspurn í bókanir og auka verðmætasköpun. Þannig gerir sameiginleg markaðssetning fyrirtækjunum kleift að ná lengra. Það er góð reynsla af þessu samstarfsmódeli og mikil samstaða um það innan greinarinnar. Ákvörðun stjórnvalda um að fjárfesta í skilvirkri og viðvarandi markaðssetningu fyrir áfangastaðinn er því fyrst og fremst fjárfesting í verðmætasköpun íslenskrar ferðaþjónustu og langtímauppbyggingu greinarinnar. Höfundur er framkvæmdastjóri Íslandsstofu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar