Reiðin magnast í Venesúela Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. júní 2026 06:57 Frá björgunaraðgerðum í borginni Catia La Mar í La Guaira héraði í Venesúela frá því í gær. EPA/Henry Chirinos Enn er leitað að fólki víðsvegar um Venesúela eftir tvo stóra jarðskjálfta sem riðu yfir landið á miðvikudag í síðustu viku. 1700 manns liggja í valnum svo vitað sé en enn eru margir enn undir rústum og eru margir Venesúelabúar nú reiðir stjórnvöldum fyrir seinagang við björgunaraðgerðir.
Breska ríkisútvarpið ræðir við fjölda Venesúelabúa sem bíða ýmist fregna eða taka þátt í leit af ástvinum sínum sem liggja enn undir rústum bygginga og eru týndir. Einn þeirra er Miguel Oscar Nunez en sonur hans að nafni Angel er einn þeirra sem var heima hjá sér í fjölbýlishúsi sem hrundi til grunna þegar jarðskjálftarnir riðu yfir. Þeir voru 7,5 og 7,2 að stærð. „Sonur minn, líkt og hundruð annarra, er fastur undir rústunum. En við þurfum meiri stuðning frá yfirvöldum og það strax til að grafa þau út. Það er mögulegt að jarðskjálftinn hafi ekki drepið hann, en geturðu ímyndað þér ef hann deyr vegna vanrækslu yfirvalda?“ segir Miguel Oscar og segir blaðamaður breska ríkisútvarpsins að reiði hans sé augljós. Fleiri íbúar Venesúela sem bíða í von og óvon eftir fréttum af ástvinum taka í svipaðan streng. Þannig var heimili Kevin Montilla í sama fjölbýlishúsi. Hann var í vinnunni en eiginkona hans Luzmary og sextán ára dóttir, Jhoerliyzmar, voru heima þegar jarðskjálftinn reið yfir. „Björgunaraðgerðir hófust mjög seint og hafa verið hægar. Í upphafi voru það aðeins íbúar í hverfinu sem komu til að hjálpa. Lögreglan kom bara til að athuga en hjálpaði ekki. Viðbrögð stjórnvalda hafa verið svekkjandi og máttlaus,“ segir hinn 34 ára gamli Kevin Montilla. Ljóst er að björgunaraðgerðir og aðgerðir til að leita þeirra sem eru látnir munu halda áfram í landinu næstu daga. Tugþúsunda er saknað. BBC segir fyrsta björgunarteymið hafa mætt á vettvang á föstudag, það hafi verið slökkviliðsmenn, tveimur dögum eftir að jarðskjálftarnir riðu yfir. Reiði íbúa sé eftir því.
Jarðskjálfti í Venesúela 2026 Venesúela Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Sjá meira