Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson skrifar 27. júní 2026 08:30 Eydís Ásbjörnsdóttir, framsögumaður lagareldisfrumvarpsins, skrifaði grein á Vísi undir fyrirsögninni „Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi“. Þar er því haldið fram að frumvarpið hafi verið stöðvað vegna valdatafls, sérhagsmuna og gamaldags viðskiptapólitíkur. Það er sérkennileg söguskýring. Frumvarpið var stöðvað vegna þess að það var ekki vandað. Það hefði fest opið sjókvíaeldi á frjóum laxi í núverandi mynd enn frekar í sessi, án þess að tryggja vernd villtra laxastofna, veiðiréttarhafa og þeirra samfélaga sem byggja verðmæti sín á heilbrigðum ám og sjálfbærri nýtingu villtra stofna. Frumvarpið og breytingartillagan svöruðu ekki alvarlegum athugasemdum sem komu fram frá veiðifélögum, náttúruverndarsamtökum, sérfræðingum og jafnvel Hafrannsóknastofnun. Þessar athugasemdir komu fram á öllum stigum málsins. Þess vegna féll frumvarpið. Ekki vegna valdatafls. Það féll vegna þess að það stóðst ekki prófið. Sýndarsamráð Landssamband veiðifélaga benti ítrekað á að samráð við veiðifélög, veiðiréttarhafa og landeigendur væri ekki aukaatriði. Þessir aðilar eiga ekki aðeins hagsmuna að gæta heldur bera þeir daglega ábyrgð á ánum, nýtingu þeirra og vernd villtra stofna. Frumvarpið gerði hins vegar ekki ráð fyrir raunverulegum samráðsvettvangi sem tryggði þeim aðkomu að stefnumótun og ákvarðanatöku. Breytingartillagan lagaði þetta ekki. Þar var bætt inn orðalagi um „samráð“ á afmörkuðum stöðum, en samráð án raunverulegrar réttarstöðu, gagnsæis og áhrifa er ekki samráð. Það heitir sýndarsamráð. Áhættumat Áhættumat erfðablöndunar á að vera verndartæki. Það á að segja til um hvar þolmörk náttúrunnar liggja, og þar með hversu mikið magn af eldislaxi megi framleiða. Það á ekki að verða pólitískt sveigjanlegt stjórntæki þar sem hægt er að vega vísindalega ráðgjöf á móti fjárhagslegum, samfélagslegum sjónarmiðum eða sérhagsmunum hverju sinni. Landssamband veiðifélaga lagði áherslu á að ráðherra ætti ekki að geta ákveðið hærra heildarlaxamagn en vísindaleg ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar segir til um. Auk þess sem Landssambandið benti á að áhættumat þyrfti að taka til allra laxastofna, ekki aðeins fyrirfram skilgreindra nytjastofna. Hafrannsóknastofnun kom með athugasemdir í sama anda í sínum umsögnum. Breytingartillagan tók ekki nægilega á þessu. Varúðarmörk eru ekki markmið, og þau eiga ekki að vera samningsatriði. Vöktun í ám og viðbrögð við stroki Vöktun í ám og veiðar á eldislaxi geta verið nauðsynleg neyðarúrræði þegar eitthvað hefur þegar farið úrskeiðis, eins og hefur ítrekað gerst. En slíkar aðgerðir mega aldrei verða hluti af kerfi sem réttlætir áframhaldandi eða aukið eldi í opnum sjókvíum. Árnar eru ekki hreinsistöðvar fyrir sjókvíaeldi. Mengandi aðili á að bera ábyrgðina. Ábyrgðin á ekki að vera færð yfir á veiðifélög, bændur, landeigendur og villta laxastofna. Breytingartillagan bætti ekki úr þessum grundvallargalla. Hún breytti orðalagi um aðgerðir á eignarlöndum og bætti við samráði við landeigendur, en tryggði ekki samþykki, raunverulega réttarvernd eða að aðgerðir í ám yrðu útilokaðar sem mótvægisaðgerðir við ákvörðun eldismagns. Í raun sagði breytingartillagan að bændur væru skyldugir til að hleypa aðilum inn á einkaland sitt til að ráðast í þessar aðgerðir en það yrði gert í samráði við þá. Burðarþol Burðarþolsmat í sjókvíaeldi má ekki snúast eingöngu um lífrænt álag. Landssamband veiðifélaga benti ítrekað á að taka þurfi tillit til mun fleiri þátta: laxalúsar, lyfja, ásætuvarna, plasts, áhrifa á botn, vatnsgæða, vistfræðilegt ástands og samverkandi álags á firði og strandsvæði. Hafrannsóknastofnun, sem framkvæmir umrætt burðarþolsmat, tók undir meginatriði þeirrar gagnrýni og benti á að álag frá eldi geti verið af fleiri toga en einungis lífrænt. Breytingartillagan tók ekki á þessum vanda. Hún svaraði ekki þeirri grunnspurningu hvernig tryggja ætti að burðarþolsmat yrði raunverulegt verndartæki fyrir vistkerfi. Laxahlutur og kvótasetning Laxahluturinn var ekki smámál. Frumvarpið hefði búið til framleiðsluheimild sem væri aðskilin frá rekstrarleyfinu sjálfu. Hún væri framseljanleg, leigjanleg og veðsetjanleg. Með öðrum orðum: sjálfstætt fjárhagslegt verðmæti. Það er því ekki fjarstæðukennt að tala um kvótakerfi í sjókvíaeldi. Þegar stjórnvöld búa til takmarkaða hlutdeild í leyfilegu heildarmagni, gera hana framseljanlega og leyfa að hún gangi kaupum, leigu og veðsetningu, þá er verið að búa til réttindakerfi sem alveg eins, og mun þróast með mjög svipuðum hætti, og við þekkjum úr fiskveiðistjórnarkerfinu. Breytingartillagan lagaði ekki þennan vanda. Þvert á móti var nýtingarskyldan mýkt, þannig að ekki þyrfti lengur að nýta laxahlut að fullu heldur 90%. Framsal og leiga stóðu áfram. Áður en Alþingi stofnar nýtt framseljanlegt auðlindakerfi hefði verið sjálfsagt að kalla eftir óháðri lögfræðilegri greiningu, til dæmis frá háskólasamfélaginu. Þá er rétt að geta þess að Landssambandið og önnur samtök sendu nefndinni og ráðuneytinu fjölmörg lögfræðiálit sem sýndu fram á líkindi laxahlutar við kvótaákvæðin í fiskveiðistjórnarkerfinu. Jafnaðarfólk ættu að þekkja þá spurningu betur en flestir: á ríkið að afhenda takmarkaða auðlind þannig að verðmætin geti safnast á fáar hendur, en áhættan og kostnaðurinn falli á almenning, náttúruna og dreifðar byggðir? Friðunarsvæði og svokallaðir hvatar Friðunarsvæði eru ein mikilvægasta verndarráðstöfunin sem íslenskir villtir laxastofnar njóta gagnvart sjókvíaeldi. Þess vegna hefði frumvarpið átt að lögfesta núverandi friðunarsvæði með skýrum hætti og tryggja að ráðherra gæti ekki veikt þá vernd síðar með reglugerð. Það er rík ástæða fyrir því að þessi svæði voruð friðuð, líkt og Hafrannsóknarstofnun benti á. Svo eru önnur svæði s.s. Eyjafjörður og Seyðisfjörður þar sem mikill meirihluti íbúa og sveitarstjórnarfólks er á móti því að fá sjókvíaeldi í sína firði. Í staðinn var opnað á tilraunir eða starfsemi með lokuðum og hálflokuðum búnaði innan svæða sem hafa verið lokuð fyrir sjókvíaeldi. Hafrannsóknastofnun benti sérstaklega á að engin reynsla væri af slíkum búnaði hér við land og takmörkuð reynsla erlendis. Það er ekki varúðarnálgun að nota friðuð svæði sem tilraunasvæði fyrir nýjan búnað. Raunverulegir hvatar til tækniskipta eiga að beinast að þeim svæðum þar sem sjókvíaeldi er nú þegar stundað. Þar ætti að skapa skýr skilyrði um að aukið svigrúm í öruggari búnaði eða með ófrjóum fiski komi í stað opins sjókvíaeldis á frjóum laxi, ekki sem viðbót ofan á núverandi áhættu. Vont frumvarp verður ekki gott af því að núverandi lög eru slæm Ef Alþingi ætlar að setja nýja heildarlöggjöf um lagareldi þarf sú vinna að byggja á vönduðu samráði, óháðri rýni og raunverulegri varúðarnálgun. Það hefði einnig verið eðlilegt að leita til þeirra fjölmörgu aðila í Noregi og um allan heim, sem hafa áratuga reynslu af áhrifum sjókvíaeldis á villta laxastofna, bæði innan vísindasamfélagsins og meðal þeirra sem hafa barist fyrir vernd villtra laxa þar í landi. Atvinnuveganefnd var bent á þessa aðila, en hafði ekki samband við þá eftir því sem við best vitum. Framtíð lagareldis á Íslandi á ekki að felast í því að festa opið sjókvíaeldi á frjóum laxi í sessi og reyna síðan að milda afleiðingarnar með eftirliti, rekköfun og orðalagi um hvata. Hún á að felast í skýrri stefnu um minni áhættu, raunveruleg tækniskipti, ófrjóan fisk, öruggari búnað og lögfestar verndarlínur fyrir villta laxastofna. Nú þegar erum við að sjá erfðablöndun í ám m.a. í Breiðdalsá í kjördæmi Eydísar og lúsafaralda á Vestfjörðum sem hafa mjög slæm áhrif á villta fiskastofna fjarðanna og mögulega gönguseiði frá öðrum landshlutum. Það frumvarp sem stöðvaðist gerði það ekki. Þess vegna var rétt að stoppa það. Höfundure er framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar