Kári bætir verulega við stöðuna í Stoðum með kaupum fyrir nærri milljarð
Félag í eigu Kára Guðjóns Hallgrímssonar, fjárfestis og sjóðstjóra, hefur á fyrstu mánuðum ársins haldið áfram að stækka talsvert við eignarhlut sinn í Stoðum, en fjárfestingafélagið hefur haft uppi áform um skráningu á hlutabréfamarkað.
Tengdar fréttir
Hundrað milljarða ferðaþjónusturisi verður til samhliða skráningu á markað
Stjórnendur Bláa lónsins og Arctic Adventures stefna að sameiningu fyrirtækjanna, sem myndi búa til risa í íslenskri ferðaþjónustu með hlutafjárvirði upp á samtals um hundrað milljarða, samhliða áformum um skráningu á markað síðla hausts þar sem ætlunin er að sækja mögulega meira en tíu milljarða. Miðað við fyrirhuguð skiptihlutföll í samrunanum þá munu Stoðir, stór eigandi í báðum félögum, verða annar umsvifamesti hluthafinn með nærri fimmtán prósenta hlut.
Kári kaupir í Stoðum fyrir um 300 milljónir
Félag í eigu Kára Guðjóns Hallgrímssonar, stjórnanda á skuldabréfasviði fjárfestingabankans JP Morgan í London, var í hópi þeirra fjárfesta sem keyptu undir lok síðasta mánaðar samtals um nítján prósenta hlut Arion banka í fjárfestingarfélaginu Stoðum.