Formúla 1

Segir Hamilton eiga mögu­leika á áttunda heimsmeistaratitlinum

Andri Broddason skrifar
Lewis Hamilton og George Russell voru einu sinni liðsfélagar hjá Mercedes en Hamilton er nú í titilslag gegn sínu gamla liði.
Lewis Hamilton og George Russell voru einu sinni liðsfélagar hjá Mercedes en Hamilton er nú í titilslag gegn sínu gamla liði. Bryn Lennon /Formula 1 via Getty Images

George Russell segir að Lewis Hamilton sé mikil ógn í heimsmeistaramóti Formúlu 1 og að titilslagurinn sé alls ekki búinn. Hamilton er bjartsýnn en hógvær.

Lewis Hamilton náði í sinn fyrsta sigur í tvö ár í síðustu Formúlu 1-keppni sem var haldin í Barcelona á Spáni. Þetta var fyrsti sigur hans hjá Ferrari og er hann búinn að vera í harðri baráttu við liðsmenn Mercedes, þá Kimi Antonelli og George Russell.

Ökumenn Mercedes hafa lent í óhöppum þar sem bílar þeirra hafa bilað og þeir ekki náð að klára nokkrar keppnir. Russell segir að það sé frábært að sjá Hamilton vera að gera það sem hann gerir best.

Hamilton átti ekki gott gengi á síðasta tímabili og náði lítið sem ekkert að tengjast bílnum sínum hjá Ferrari. Russell segist alltaf hafa vitað hvað Hamilton geti gert en það er meira sem spilar inn í. „Þú ásamt liðinu, stillingum bílsins og dekkjunum þurfa að smella saman. Þegar þetta smellur saman þá flýgurðu áfram.“

Russell bætir við að Antonelli, sem er liðsfélagi hans, sé í bílstjórasæti heimsmeistaramótsins en Ferrari og Hamilton séu mikil ógn.

Hamilton reynir að hugsa ekki svona langt fram í tímann og reynir að taka bara eina keppni í einu. Hann gerir sér þó grein fyrir möguleikunum á tímabilinu en hann veit að það þarf mikið til að ná Antonelli í efsta sætinu.

„Við þurfum hjálp frá öllum, allar hendur á dekki út tímabilið ef við ætlum að vera nálægt því að keppa við Mercedes. En það er ekki ómögulegt.“

Ástæða velgengni Mercedes er vegna þess að vélin í bílnum þeirra hefur verið best af öllum öðrum vélaframleiðendum. Austurríski kappaksturinn er um helgina og kemur Ferrari þá með uppfærslu á vélinni sinni. Það verður spennandi að sjá hvort að það hjálpi Hamilton í sínum titilslag.

Hamilton er í örðu sæti heimsmeistaramótsins, 41 stigi á eftir Kimi Antonelli í efsta sætinu. George Russel stendur í því þriðja, níu stigum á eftir Hamilton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×