Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Sindri Sverrisson skrifar 26. júní 2026 07:00 Patrik Schick er hættur í landsliðinu. Getty/Molly Darlington Eftir að hafa slegið út Dani, sem og Heimi Hallgrímsson og hans menn í írska landsliðinu, úr leik í umspili fyrir HM í fótbolta enduðu Tékkar í neðsta sæti A-riðils og eru úr leik. Markahrókurinn Patrik Schick hefur fengið nóg og er hættur í tékkneska landsliðinu.
Tékkar töpuðu gegn Suður-Kóreu og Mexíkó, og gerðu jafntefli við Suður-Afríku, og enduðu því neðstir í A-riðli með eitt stig. Degi síðar tilkynnti hinn þrítugi Schick að hann væri hættur í landsliðinu. Þar með er skarð fyrir skildi því hann skoraði 26 mörk í 56 leikjum með landsliðinu og hefur raðað inn mörkum í búningi Leverkusen síðustu ár, eftir mikla glímu við meiðsli. Schick virðist óánægður með hvernig málum er háttað hjá tékkneska knattspyrnusambandinu en það mátti lesa út úr tilkynningu hans á Instagram um að hann væri hættur að þjóna því. View this post on Instagram A post shared by Patrik Schick (@p_schicky) „Ég hætti stoltur af því sem ég hef afrekað í landsliðstreyjunni. Á sama tíma finnst mér hins vegar að tékkneskur fótbolti gæti afrekað MUN, MUN meira en raunin hefur verið síðustu ár,“ skrifaði Schick meðal annars og hélt áfram. „Við verðum að horfast í augu við staðreyndir og breyta mörgum hlutum sem hafa ekki verið að ganga upp í langan tíma. Ég segi þetta ekki vegna reiði eða af vonbrigðum heldur vegna þess að mér er afar annt um tékkneskan fótbolta. Þakkir til allra stuðningsmanna, liðsfélaga og annarra sem stutt hafa við mig í gegnum árin. Það var heiður að klæðast tékknesku treyjunni,“ skrifaði Schick.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Sjá meira