Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Sindri Sverrisson skrifar 25. júní 2026 22:33 Keppni í öllum öðrum riðlum verður lokið þegar Austurríkismenn mæta Alsír aðfaranótt sunnudags, svo þeir munu vita hvaða úrslit duga þeim og hvort naumt tap gæti fært þeim auðveldari mótherja í 32-liða úrslitum. Getty/Charlotte Wilson Nýja keppnisfyrirkomulagið á HM, þar sem 48 lið keppa og 32 þeirra komast áfram í útsláttarkeppnina, býður upp á hættu á hneyksli í lokaumferð riðlakeppninnar, sérstaklega í tveimur leikjum.
Til þess að hafa hreina 32-liða útsláttarkeppni ákvað FIFA að hleypa átta liðum með bestan árangur í 3. sæti, í riðlunum tólf á HM, áfram á mótinu. Þetta þýðir að liðin í riðlunum sem klárast síðast vita betur en önnur hvaða úrslit duga þeim til þess að komast áfram í 32-liða úrslitin, og jafnvel hvaða andstæðingum þau myndu mæta þar. Miðlar á borð við BBC, Goal og fleiri hafa bent á hættuna sem af þessu skapast, sérstaklega í tilviki leiks Austurríkis og Alsírs í J-riðli. Í J-riðli er nefnilega þegar orðið öruggt að Argentína endar í 1. sæti og Jórdanía í 4. sæti. Austurríki og Alsír eru með þrjú stig hvort í 2.-.3 sæti en Austurríki með betri markatölu. Þetta þýðir að liðin vita að jafntefli mun senda þau bæði áfram á mótinu, því fjögur stig munu örugglega duga fyrir lið í 3. sæti til að komast í 32-liða úrslitin. Það verður komið alveg á hreint fyrir leik liðanna sem fram fer aðfaranótt sunnudags. Standings provided by Sofascore Gætu forðast Spán með tapi En það sem meira er þá er sú hætta fyrir hendi að Austurríkismenn freistist til þess, meðvitað eða ómeðvitað, að tapa leiknum til að fá hentugri mótherja í útsláttarkeppninni, verði orðið ljóst að þeir hafi efni á að tapa en komist samt áfram. Eins og staðan er núna mun liðið sem endar í 2. sæti J-riðils nefnilega mæta Spáni en liðið í 3. sæti mæta Sviss, í 32-liða úrslitunum. Flestir myndu eflaust frekar kjósa að mæta Svisslendingum en sjálfum Evrópumeisturunum. BBC bendir á að í nótt sé einnig hætta á að Ástralía og Paragvæ taki litla áhættu og sættist á jafntefli í lokaumferðinni í D-riðli, þar sem það myndi þýða að bæði lið endi með fjögur stig og komist að öllum líkindum bæði áfram. Einnig gætu Japan og Svíþjóð verið býsna sátt með jafntefli í F-riðli, sem og Gana og Króatía í L-riðli, en í þessum tilfellum eru meiri líkur á að Japan og Gana séu tilbúin að sækja til sigurs þar sem þau eru þegar komin með fjögur stig.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira