Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Freyja Þórisdóttir skrifar 25. júní 2026 20:25 Mál Jessicu Mann var tekið upp þrisvar sinnum en nauðgunarákæran hefur nú verið felld. Getty Saksóknarar í New York hafa fellt niður ákæru á hendur kvikmyndaframleiðandanum og kynferðisafbrotamanninum Harvey Weinstein. Málið hafði þegar verið tekið fyrir þrisvar sinnum, einu sinni leiddi það til sakfellingar sem var hnekkt og tvisvar sinnum komst kviðdómur ekki að niðurstöðu. Aðrar sakfellingar Weinsteins, þar á meðal fyrir annað kynferðisbrot í New York og önnur í Kaliforníu, standa enn.
Hafa saksóknarar greint frá því að þeir felli málið niður í kjölfar viðræðna við ákæranda Weinsteins, hárgreiðslukonuna og leikkonuna Jessicu Mann, sem óskar þess ekki að ganga í gegnum áreynsluna og vanlíðanina sem myndi fylgja öðrum réttarhöldum. „Til að taka af allan vafa þá trúum við frásögn frú Mann og efumst ekki um trúverðugleika hennar sem vitnis,“ er haft eftir Alvin Bragg Jr., héraðssaksóknara á Manhattan, í frétt breska ríkisútvarpsins (BBC). „Þetta hefur verið henni gríðarlega þung raun og hún hefur aldrei hvikað þegar hún bar vitni fyrir tveimur ákærukviðdómum og þremur kviðdómum í réttarhöldum á átta ára tímabili,“ segir þar jafnframt. „Við þökkum henni fyrir heiðarleika hennar og gríðarlegt hugrekki.“ Þrjár mislukkaðar tilraunir Fyrstu réttarhöldin sem vörðuðu Mann, árið 2020, byggðu á vitnisburði þriggja kvenna: Mann sjálfrar, fyrrverandi aðstoðarkonu við sjónvarpsframleiðslu Miriam Haley, og fyrirsætunnar Kaja Sokola. Allar þrjár sökuðu Weinstein um að hafa notað vald sitt í skemmtanaiðnaðinum til að beita þær kynferðislegu ofbeldi. Sakfelling Weinsteins í þeim réttarhöldum var ómerkt árið 2024 eftir að áfrýjunardómstóll komst að þeirri niðurstöðu að dómarinn hefði ranglega leyft vitnisburð frá konum þar sem ásakanir þeirra voru ekki hluti af málinu sem var til meðferðar. Önnur réttarhöld fóru fram á síðasta ári en þau vörðuðu Mann og Haley. Kviðdómurinn fann Weinstein sekan um kynferðisbrot gegn Haley en komst ekki að niðurstöðu varðandi nauðgunarákæruna gegn Mann, sem varð til þess að dómarinn fyrirskipaði ný réttarhöld fyrir hana. Þriðju og nýjustu réttarhöldin sem vörðuðu Mann enduðu í maí 2026 með því að annar kviðdómur komst ekki að einróma niðurstöðu. Hundrað ásakanir um kynferðislega misnotkun Í þriðju réttarhöldunum bar Mann vitni um að hún hefði af fúsum og frjálsum vilja átt í kynferðislegum samskiptum við Weinstein en að hann hefði neytt hana til að stunda með sér samfarir á hótelherbergi í mars 2013, þrátt fyrir að hún hefði ítrekað sagt nei. Verjendateymi Weinsteins hélt því fram á þeim tíma að samfarirnar hefðu verið með samþykki. „Harvey er létt yfir niðurstöðu dagsins,“ er haft eftir fulltrúa Weinsteins í frétt BBC. „Við teljum að þetta sé niðurstaðan sem hefði átt að nást strax í upphafi hefði ákærukviðdómurinn fengið að sjá allt umfang tölvupósta, textaskilaboða og annarra einkasamskipta.“ Alls hafa að minnsta kosti hundrað konur sakað Weinstein um kynferðislega misnotkun, líkamsárás og nauðgun en hann fór fyrst í fangelsi þann 24. febrúar 2020, þegar hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald strax eftir sakfellingu sína í New York. Hann var síðan dæmdur í 23 ára fangelsi þann 11. mars 2020 og situr í dag í fangelsi á Rikers Island.
Mál Harvey Weinstein Kynferðisofbeldi Kynbundið ofbeldi Dómsmál Bandaríkin Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Fleiri fréttir Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Sjá meira