Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Atli Ísleifsson skrifar 25. júní 2026 06:18 Skjálftarnir riðu yfir rétt rúmlega 18 að staðartíma eða 22 í gærkvöldi að íslenskum tíma. AP Óttast er að mörg þúsund manns hafi týnt lífi í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Venesúela í gærkvöldi. Fyrri skjálftinn mældist 7,2 og sá seinni 7,5 en upptök skjálftans voru vestur af höfuðborginni Caracas.
Delcy Rodríguez, starfandi forseti Venesúela, hefur staðfest að 32 hafi látist og rúmlega sjö hundruð manns slasast. Á vef Bandarísku jarðvísindastofnunarinnar USGS kemur þó fram að talið sé að manntjónið kunni í raun að vera miklu meira enda séu enn upplýsingar að berast. Segir að 44 prósent líkur séu á að rúmlega 10 þúsund manns hafi látist í skjálftunum og eru 30 prósent líkur á að talan sé yfir 100 þúsund. Björgunarlið leita nú í rústum bygginga í höfuðborginni og í héraðinu La Guaira sem talið er að hafi orðið verst úti. Skjálftarnir riðu yfir rétt rúmlega 18 að staðartíma eða 22 í gærkvöldi að íslenskum tíma. Venezuela Earthquake Rescue workers search through the rubble of a collapsed building after an earthquake in Caracas, Venezuela, Wednesday, June 24, 2026.(AP Photo/Javier Campos) Yfirvöld í Venesúela hafa þegar lýst yfir neyðarástandi í landinu og tilkynningar hafa borist um mikla eyðileggingu. Forsetinn Rodríguez segist enn ekki hafa fengið upplýsingar um umfang eyðileggingarinnar og manntjón í La Guaira. Tenemos un objetivo central y esencial: salvar vidas en unión nacional, unidos vamos a superar esta tragedia. pic.twitter.com/OXlmrKZo9m— Delcy Rodríguez (@delcyrodriguezv) June 25, 2026 Skjálftarnir í nótt eru þeir stærstu í landinu í rúma öld, en skjálftinn fannst einnig í Bogota, höfuðborg Kólumbíu. Yfirvöld í nágrannaríkjum hafa boðið fram aðstoð vegna skjálftanna. AP Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði sömuleiðis í nótt að bandarísk stjórnvöld væru reiðubúin að aðstoða Venesúela og hefur hann beint þeim orðum til bandarískra stofnana að hefja slíkan undirbúning. AP AP Upptök skjálftanna.
Venesúela Eldgos og jarðhræringar Náttúruhamfarir Jarðskjálfti í Venesúela 2026 Tengdar fréttir Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Gríðarstór skjálfti skók Venesúela í dag og olli því að hús hrundu í höfuðborginni Karakas. Risaölduviðvörun hefur verið gefin út í Venesúela, Arúba og Bonaire. Hann fannst einnig í Kólumbíu. 24. júní 2026 23:56 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Gríðarstór skjálfti skók Venesúela í dag og olli því að hús hrundu í höfuðborginni Karakas. Risaölduviðvörun hefur verið gefin út í Venesúela, Arúba og Bonaire. Hann fannst einnig í Kólumbíu. 24. júní 2026 23:56