Allt í steik hjá Senegal: Óánægja með kokkinn og ógreiddir bónusar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. júní 2026 07:00 Senegalska liðið er án stiga í I-riðli heimsmeistaramótsins. getty/Jussi Eskola Senegal er án stiga eftir fyrstu tvo leiki sína á heimsmeistaramótinu og vinni liðið ekki Írak í lokaumferð riðlakeppninnar er það úr leik. Ýmislegt hefur gengið á bak við tjöldin hjá Senegölum.
Á mánudaginn tapaði Senegal fyrir Noregi, 3-2, í I-riðli heimsmeistaramótsins. Senegalar töpuðu einnig fyrir Frökkum, 3-1, og eiga á hættu að falla snemma úr leik á mótinu. Ástandið í herbúðum senegalska liðsins hefur ekki verið eins og best verður á kosið eins og BBC fjallar um. Vildu senegalskan mat Fyrir það fyrsta hætti kokkur senegalska liðsins af persónulegum ástæðum skömmu áður en heimsmeistaramótið hófst. Leikmenn og þjálfarateymi Senegals ku vera sáttir við nýja kokkinn en aðra sögu er að segja af aðilum í kringum liðið sem dvelja á hóteli þess í New Jersey. Hinir vandlátu eru ósáttir við að ekki sé boðið upp á senegalskan mat og hafa stundum pantað sér mat annars staðar frá. Stuðningsmenn Senegals sem fylgdust með leiknum gegn Noregi á risaskjá í höfuðborginni Dakar.getty/Cem Ozdel Þá voru leikmenn Senegals ósáttir við að hafa ekki fengið greidda bónusa. Því var loks kippt í liðinn af ríkisstjórn Senegals fyrir nokkrum dögum. Pape Thiaw, þjálfari senegalska liðsins, hefur þvertekið fyrir að vandræðin utan vallar hafi haft áhrif innan vallar. Forsetinn blandaði sér í málið Thiaw hefur sjálfur staðið í stappi við senegalska knattspyrnusambandið um nýjan samning. Eftir að hafa komið Senegal í úrslitaleik Afríkumótsins vildi Thiaw fá nýjan samning. Það tafðist þó, meðal annars vegna breytinga í senegölskum stjórnmálum en ríkisstjórn landsins þarf að gefa grænt ljós á samninga sem þessa. Undir stjórn Papes Thiaw komst Senegal í úrslit síðasta Afríkumóts og vann þar Marokkó. Titilinn var hins vegar tekinn af Senegölum eftir að þeir gengu af velli í mótmælaskyni á meðan úrslitaleiknum stóð. Senegal hefur áfrýjað þeim úrskurði og gæti endurheimt titilinn eftir allt.getty/Tom Weller Thiaw hafði ekki skrifað undir nýjan samning þegar senegalska liðið mætti til Bandaríkjanna. En vegna pressu frá aðstandendum Thiaws blandaði forseti Senegals, Bassirou Diomaye Faye, sér í málið. Hann hafði samband við Thiaw og skömmu síðar skrifaði hann undir nýjan samning. Hann felur í sér verulega launahækkun fyrir Thiaw sem tók við senegalska landsliðinu í desember 2024. „Það er satt að þetta tók langan tíma en þetta snerist aldrei um peninga. Þetta snerist um prinsipp og virðingu en hefur verið leyst,“ sagði Thiaw. „Sem Senegalar er ættjarðarástin mikilvægari en allt en spurningar varðandi samninginn tilheyra fortíðinni. Það er búið að skrifa undir hann.“ Senegal mætir Írak í Toronto í lokaumferð riðlakeppninnar á föstudaginn og verður að vinna til að eiga möguleika á að komast í 32-liða úrslit.
HM 2026 í fótbolta Senegal Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Fleiri fréttir Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Sjá meira