„Fengum það sem við verðskulduðum“ Árni Gísli Magnússon skrifar 22. júní 2026 22:24 Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, var ósáttur við frammistöðu Þróttar í kvöld. Vísir/Diego „Ég er bara vonsvikinn með okkur í þessum leik og ég held að við því miður höfum fengið það sem við verðskulduðum úr þessum leik sko“, sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, eftir tap gegn sínu gamla liði, Þór/KA. „
Byrja á því að óska Þór/KA til hamingju, þeirra frammistaða verðskuldaði þrjú stig fannst mér, og mér finnst það ekki vera þeirra fyrsta í sumar en orkan, baráttan, þær bara börðu okkur út af vellinum og áttu bara skilið það sem þær fengu.“ „Sérstaklega fannst mér í fyrri hálfleik að þá vantaði svona orku og anda og baráttu og því miður þá sagði ég við stelpurnar bæði í hálfleik og eftir leik að mér fannst annað liðið vera að keppa að einhverju og hitt liðið ekki og ég held að það hafi verið stóru munurinn á liðunum en auðvitað er ég mjög ósáttur með hvernig við fáum þessi tvö mörk á okkur.“ „Það sem ég þarf að glíma meira við með mitt lið núna í þessar tæpu þrjár vikur fram að næsta leik er að við þurfum náttúrulega að fara gera meira fram á við því við vorum steingeldar í dag og við eigum þó við höfum verið frekar daprar oft sóknarlega þá var þetta óvenju slæmt.“ Eins og Jóhann kemur inn á var sóknarleikur Þróttar ekki góður í dag en baráttan og viljinn virtist ekki vera til staðar heldur til þess að bæta það upp. „Já mér fannst við vera svona bara í einhverju ástandi sem að er einhversstaðar mitt á milli þess að vera vanmeta, að vera ekki nógu orkumiklar, hvort sem það er eftir eitthvað sem að túlkast þá bara sem afsakanir eða eitthvað. Síðasti leikur eða síðustu leikir eða eitthvað en ég ætla ekki að tefla fram neinum afsökunum því þú átt bara að vera tilbúin í þetta og hvort sem vanti mannskap eða stutt á milli leikja eða hvað. Við eigum bara að vera tilbúin til að keppa, við erum í þessu til þess að keppa í fótbolta og stelpurnar eru súrar núna. Þær eiga að vera það og við þurfum að fara vel yfir þetta eftir tvo daga því þetta er ekki ásættanlegt en þetta var gott fyrir hitt liðið.“ Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þór/KA, kemur frá Húsavík líkt og Jóhann og fór fögrum orðum um hann í viðtali rétt á undan og var Jóhann inntur eftir viðbrögðum við því. „Það er alveg rétt, við höfum þekkst lengi og hann var ekki hár í loftinu þegar ég byrjaði að þjálfa hann en það sem Þór/KA í heild sinni gerir vel í dag er að þau koma með kassann úti og hökuna uppi og fulla trú á verkefninu og þau vinna á því. Við gerðum það ekki og við fengum það sem þú færð þegar þú gerir svoleiðis.“
Besta deild kvenna Þróttur Reykjavík Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Handbolti Fleiri fréttir Bein útsending: Dregið í Meistaradeild Evrópu Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ Sjá meira