Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Kjartan Kjartansson skrifar 19. júní 2026 10:17 Brosmildur Andy Burnham (f.m.) með mótframbjóðendum sínum í aukakosningum í Makerfield þegar talning atkvæða hófst í gær. Vísir/EPA Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins, segist ætla að freista þess að standa af sér mögulegt áhlaup frá Andy Burnham, nýrri vonarstjörnu flokksins. Burnham náði kjöri á þing í aukakosningum í gær.
Leiðtogaslagur er í uppsiglingu í Verkamannaflokknum eftir að Burnham, vinsæll borgarstjóri Stór-Manchester-svæðisins, var kjörinn þingmaður Makerfield í aukakosningum sem fóru fram í gær. Ríkisstjórn Starmer hefur verið gríðarlega óvinsæl um langa hríð og forsætisráðherrann sjálfur átt í vök að verjast vegna fjölda mála, þar á meðal fyrir að skipa sendiherra í Bandaríkjunum sem hafði náin tengsl við Jeffrey Epstein, bandaríska auðkýfinginn og kynferðisbrotamanninn. Verkamannaflokkurinn fór síðan illa út úr sveitarstjórnarkosningum sem fóru fram í síðasta mánuði. Fjöldi þingmanna flokksins kröfðust þess að Starmer segði af sér í kjölfarið en hann sat sem fastast. „Allir vita að stjórnmálin virka ekki þessa stundin. Allir finna að landið er ekki þar sem það ætti að vera. Kvöldið í kvöldi gæti, gæti mögulega, verið vendipunktur,“ sagði Burnham í sigurræðu sinni. Skorast ekki undan ef til leiðtogakjörs kemur Starmer óskaði Burnham til hamingju með sigurinn í færslu á samfélagsmiðli og fagnaði því að kjósendur hefðu valið von og bjartsýni Verkamannaflokksins fram yfir sundrung og hatur. Burnham vann öruggan sigur á Rob Kenyon, frambjóðanda Umbótaflokksins, þjóðernisíhaldsflokks sem fer með himinskautum í skoðanakönnunum á landsvísu. Þó að djúpstæð óánægja sé með Starmer innan Verkamannaflokksins getur Burnham ekki gengið að stól hans vísum. Starmer sagðist ætla að taka þátt í leiðtogakjöri ef til þess kemur. „Ég hef ítrekað sagt að ég ætli ekki að skorast undan því,“ sagði Starmer. Legði Burnham Starmer í leiðtogakjöri tæki hann við sem forsætisráðherra á miðju kjörtímabilinu. Til þess að efna til leiðtogakjörs þarf Burnham að tryggja sér stuðning fimmtung þingflokksins í neðri deild breska þingsins, alls 81 þingmanns. With Andy Burnham having won the Makerfield by-election, a leadership challenge looks likely. In the event that Burnham and Starmer face off, our Labour members poll in May showed Burnham ahead by 59% to 37% yougov.com/en-gb/articl...[image or embed]— YouGov (@yougov.co.uk) June 19, 2026 at 6:43 AM Skoðanakönnun Yougov frá því í maí benti til þess að 59 prósent félaga í Verkamannaflokknum styddu Burnham í mögulegu leiðtogakjöri en 37 prósent Starmer.
Bretland Kosningar í Bretlandi Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Sjá meira