Golf

Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga

Andri Broddason skrifar
Kylfingar líkt og Rory Mcllroy eru orðnir of högglangir.
Kylfingar líkt og Rory Mcllroy eru orðnir of högglangir. Dylan Buell/Getty Images

Hætt hefur verið við að takmarka boltaflug atvinnumanna í golfi. Verið er að reyna að finna aðrar lausnir til þess að takmarka högglengd atvinnukylfinga. Búist er við að þær reglur verði settar árið 2030.

Golfíþróttin hefur þróast umtalsvert á síðustu árum og hefur þróun kylfa og bolta gert það að verkum að kylfingar slá lengra nú en nokkru sinni áður. Þar eru sérstaklega teknir fram Scottie Scheffler, Rory Mcllroy og Bryson DeChambeau.

Bandaríska golfsambandið ætlaði að setja nýjar reglur um golfbolta árið 2028. Þar áttu golfboltarnir ekki að geta flogið jafn langt og þeir gera nú. Þrátt fyrir að það sé búið að hætta við að hægja á boltanum er verið að reyna að finna aðrar leiðir til að draga úr högglengd í staðinn.

Ástæðan fyrir þessum reglubreytingum er vegna þess að margir sögufrægir vellir eru ekki jafn erfiðir og þeir voru. Par fjögur holur sem voru með allskonar hættum á brautinni eru nú ekkert vandamál fyrir atvinnukylfinga. Upphafshöggið er sett rétt hjá flötinni og svo vippa þeir þægilega inn á flötina. Sömuleoðis eru flestir kylfingar sem komast auðveldlega inn á flöt í tveimur höggum á holu sem er par fimm.

Eitt sem hefur verið gert til að sporna við þessu er að búa til nýja teiga aftar á vellinum fyrir atvinnukylfingana. Það er ekki fullkomin lausn þar sem það hægir á leikhraða vegna þess að kylfingar þurfa að ganga lengri vegalengdir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×