Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Sindri Sverrisson skrifar 17. júní 2026 13:02 Freyr Alexandersson virðist þurfa að þagga niður í efasemdaröddum þegar hann tekur til starfa hjá Rosenborg. Getty/Alessandro Sabattini Freyr Alexandersson hefur verið ráðinn nýr þjálfari norska stórveldisins Rosenborg en ekki virðast allir sannfærðir um að hann sé rétti maðurinn til að reisa félagið upp úr öskustónni. „
Ég held að Rosenborg hafi ekki fengið sinn fyrsta kost, ekki annan kost og ekki þriðja kost. Það segir svolítið sitt um Rosenborg sem félag og hve aðlaðandi það er núna,“ segir Birger Løfaldli hjá Adressavisen, í samtali við norska ríkismiðilinn NRK. Freyr hefur á þjálfaraferli sínum erlendis náð mögnuðum árangri í að koma liðum úr erfiðri stöðu, eins og Rosenborg er svo sannarlega í núna. Hann kom danska smáliðinu Lyngby upp í úrvalsdeild og hélt því þar þrátt fyrir afar dökkt útlit framan af tímabili. Stórveldi í fallsæti Hann tók svo við belgíska liðinu Kortrijk í nánast vonlausri stöðu í ársbyrjun 2024 en náði að bjarga því frá falli. Hann var engu að síður rekinn í desember sama ár og tók þá við Brann í Noregi sem var grátlega nálægt því að verða bikarmeistari í vor undir stjórn Freys, eftir að hafa sömuleiðis komist áfram úr deildarkeppni Evrópudeildarinnar í vetur og í umspil þar sem liðið féll út gegn Bologna frá Ítalíu. Eftir slakt gengi í upphafi leiktíðar í norsku úrvalsdeildinni nú í vor ákváðu forráðamenn Brann að láta Frey fara um síðustu mánaðamót. Hann skildi við liðið í 11. sæti með 13 stig, þó ofar en Rosenborg sem er í fallsæti með aðeins 9 stig. Rosenborg er sigursælasta lið Noregs frá upphafi, með 26 Noregsmeistaratitla og 12 bikarmeistaratitla, auk þess að hafa náð eftirtektarverðum árangri í Evrópukeppnum á árum áður. Finnst þetta sýna örvæntingu hjá Rosenborg „Tröllabörnin“ mega hins vegar muna fífil sinn fegurri og hafa nú sótt tvo Íslendinga til að rétta úr kútnum því Alfreð Finnbogason var ráðinn yfirmaður fótboltamála í ársbyrjun. Løfaldli efast hins vegar um að Freyr sé rétti maðurinn fyrir Rosenborg. „Mér finnst þetta sýna svolitla örvæntingu hjá Rosenborg. Þeir losuðu sig við Alfred Johansson og höfðu greinilega ekki skýra áætlun um hver ætti að koma í hans stað,“ segir Løfaldli sem telur Frey ekki rétta manninn til að kalla fram þann sóknarbolta sem menn vilja sjá í Þrándheimi. „Ég er í vafa um að hann sé maður sem getur náð því fram á Lerkendal. En hann er sjarmerandi náungi og maður sem getur náð hópnum með sér og komið upp stemningu á Lerkendal,“ segir Løfaldli.
Norski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Sjá meira