Spá allt að fjörutíu stiga hita Sigurgeir Þorkelsson skrifar 17. júní 2026 20:22 Þessi gerði sitt besta til að verja sig gegn sólinni þegar hiti náði fjörutíu gráðum í Sevilla á sunnanverðum Spáni í lok maí. Getty Búist er við að hitabylgja muni ganga yfir sunnanverða Evrópu næstu daga. Helsta orsökin er heitt loft sem berst norður til Evrópu frá Sahara.
Hiti mun ná allt að fjörutíu gráðum á sunnanverðum Spáni um helgina. Þar að auki mun hiti ekki ná undir tuttugu gráður yfir nóttina og verður því litla hvíld að fá fyrir íbúa. Frakkar fá að finna fyrir hitabylgjunni en á morgun spáir þrjátíu og sex stiga hita til að mynda í höfuðborginni París og Bordeaux í suðvesturhluta landsins. Samkvæmt spá mun hiti ná þrjátíu og átta gráðum í París á mánudag. Euronews greinir frá því að yfirvöld í Frakklandi skoði hvort færa þurfi lokapróf vegna hitabylgjunnar. Á Ítalíu gætu hitatölur náð fjörutíu gráðum í hinni fornfrægu Flórens. Hitinn mun teygja sig áfram norður yfir Alpana og er spáð þrjátíu og átta gráðum í Frankfurt á þriðjudag í næstu viku. Áhyggjur vegna álags á innviði sem ekki voru byggðir fyrir hitabylgjur af þessu tagi hafa þegar gert vart við sig. Hitabylgjan teygir sig einnig til austurs. Á laugardag er spáð þrjátíu og fjórum gráðum og þrumuveðri í Prag og þrjátíu og fimm stiga hita í Búdapest. Ástæða er fyrir Íslendinga á faraldsfæti að fylgjast vel með veðurspám þar sem þeir eru staddir og fylgja fyrirmælum yfirvalda. The New York Times greinir frá því að hitabylgjan hafi þegar haft áhrif á ferðaáætlanir fólks. Veður verður mun skaplegra í Skandinavíu, í Ósló fer hitinn hæst í tuttugu og fjórar gráður á sunnudaginn. Maíhitamet féllu víða í Bretlandi fyrir tæpum mánuði. Síðustu ár hefur mikið hefur verið rætt um að hitabylgjum sem þessum muni fara fjölgandi eftir því sem meðalhitastig jarðarinnar hækkar og loftslag breytist.
Loftslagsmál Spánn Frakkland Hitabylgja í Evrópu í júní 2026 Tengdar fréttir Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Elísabet Reykdal, húð- og kynsjúkdómalæknir, segist gera skjólstæðinga sína hissa þegar hún útskýrir hvernig eigi að bera á sig sólarvörn. Mikilvægt sé að bera á sig sólarvörn á Íslandi yfir sumarmánuðina, jafnvel þó skýjað sé. Þá upplýsir Elísabet líka um besta ráðið til að verða brúnn skjótt án þess að skaða húðina. 13. júní 2026 07:55 Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira
Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Elísabet Reykdal, húð- og kynsjúkdómalæknir, segist gera skjólstæðinga sína hissa þegar hún útskýrir hvernig eigi að bera á sig sólarvörn. Mikilvægt sé að bera á sig sólarvörn á Íslandi yfir sumarmánuðina, jafnvel þó skýjað sé. Þá upplýsir Elísabet líka um besta ráðið til að verða brúnn skjótt án þess að skaða húðina. 13. júní 2026 07:55