Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 16. júní 2026 21:02 Herdís og Mæja hafa verið vinkonur frá því þær voru litlar stelpur. Nú býr Herdís á höfuðborgarsvæðinu og Mæja á Hvammstanga og nýta þær tæknina til að spjalla saman á morgnana og herlegheitin rata á TikTok. vísir/lýður valberg Sífellt fleiri fulltrúar eldri kynslóðarinnar hafa látið til sín taka á samfélagsmiðlinum TikTok að undanförnu. Tvær sjötugar konur segja miðilinn stórskemmtilegan þrátt fyrir að þær þykist ekkert kunna á hann. Þær skilji ekki hvernig fólk nenni að horfa á vitleysuna í þeim.
Konurnar heita Herdís Hjörleifsdóttir og Marín Sigurðardóttir, alltaf kölluð Mæja, og hafa undanfarið gert gott mót á forritinu. Herdís fékk áskorun frá barnabarni sínu að prufa að birta eitt myndband á dag í þrjátíu daga. „Og ég byrjaði og var búin að taka einhverja vitleysu í þrjá daga og hugsaði með mér: Hvernig hefur fólk hugmyndaflug í að vera með eitthvað alla daga?“ segir Herdís. Hún ákvað því að taka upp morgunspjall sem hún á reglulega við Mæju vinkonu sína sem búsett er á Hvammstanga og sló það í gegn. @tofftypa56 Endurkoma og málæði 🥳🫣@Maæa ♬ original sound - Herdis56 Hvernig voru viðtökurnar? „Fáránlegar,“ segi Mæja. „Já, fáránlega miklar. Ég held að það sé eitthvað myndband sem hefur verið horft á 45 þúsund sinnum eða eitthvað. Hver nennir að hlusta á þetta bull? Þetta er bara rugl,“ tekur Herdís undir. „Við upplifum þetta bara sem gaman fyrir okkur og fíflagang,“ segir Mæja hlæjandi. @tofftypa56 ♬ Us girls we are so magical - Tierna. Langaði að vera með Þær segjast ekkert kunna á tæknina. „Ég kann ekkert á þetta, og við hvorugar. Við gerum bara eitthvað.“ Þær fikri sig bara áfram enda segja þær mikilvægt að fylgjast með tækninni til að halda sér ungum og geta tekið þátt í samfélaginu. „Mig langaði bara til að prófa og fá að vera með, gera einhverja vitleysu og skemmta sér. Þá er maður búinn að haka í boxið og getur sagt við langömmubörnin að einu sinni var ég á TikTok. Þá segja þau: Hvað er það? Því þá er það komið úr tísku.“ @tofftypa56 ♬ COME DANCING - CHARLESTON - Cavendish Langa að upplifa sem mest Stöllurnar hafa verið vinkonur frá því þær voru litlar stelpur. Þær elska áskoranir og vilja nýta tímann sem best til að upplifa sem mest. „Ef einhver segir við okkur: Þið getið þetta ekki, þá byrjar maður,“ segir Herdís spennt. „En við skulum ekki bjóða því heim Herdís, nú stoppar þú. Við viljum ekki áskoranir,“ segir Mæja. „Jú það er svo margt sem maður á eftir að gera.“ Og nefnir til að mynda Zip line í Hveragerði. Þær hafa kynnst fullt af fólki í gegnum miðilinn en segja það koma þeim virkilega á óvart að fólk yfir höfuð horfi á myndböndin þeirra. „Já hver nennir að horfa á þetta bull?“ spyrja þær. @tofftypa56 ♬ original sound - Herdis56 Aðdáendur á öllum aldri „Ég var í fermingarveislu hjá frænku minni um daginn og hún spurði hvenær við ætluðum að halda áfram því krakkarnir í bekknum voru að tala um þetta. Og ég bara bíddu þau eru fjórtán ára að horf á einhverjar gamlar kellingar. Við skiljum þetta ekki.“ Sífellt fleiri fulltrúar eldri kynslóðarinnar hafa sótt TikTok sem virðist höfða til allra aldurshópa. @tofftypa56 ♬ original sound - Herdis56 Hvað segja vinirnir og barnabörnin, en fólk á Hvammstanga? „Það er kannski ekki mikið rætt um þetta á Hvammstanga en ég á fullt af barnabörnum og þeim finnst þetta fyndið og skemmtilegt og hvetja mann áfram,“ segir Mæja. Þær hvetja fólk á þeirra aldri til að prufa miðilinn og skemmta sér í leiðinni. Það er að minnsta kosti ljóst að ef hláturinn lengi lífið verði þessar vinkonur mörg hundruð ára. @tofftypa56 ♬ original sound - Herdis56 Njóta hverrar mínútu Ykkur finnst gaman að vera til, ég sé það? „Guð minn góður já, við elskum lífið. Eins og gengur með fólk á okkar aldri sem hefur orðið fyrir áföllum í gegnum tíðina, þá lærir maður að njóta hverrar einustu mínútu. Það er ráðlegging mín til allra. Og gleðjast með öðrum og hafa gaman.“ @tofftypa56 #2025recap ♬ suara asli - TEMPLATE FOR YOU - TRENDING TEMPLATE
Samfélagsmiðlar Tækni Eldri borgarar Mest lesið Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Tuttugu gellur á einu kvöldi Lífið Bonnie Tyler vöknuð úr dái Tónlist Heitustu tískutrendin í sumar Tíska og hönnun Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Lífið Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Sjá meira