Er ný fjármálaáætlun á áætlun? Birta Karen Tryggvadóttir skrifar 16. júní 2026 13:00 Fjármálaáætlun var samþykkt á Alþingi í gær. Hún er til næstu fimm ára og sýnir hvernig stjórnvöld áætla að tekjur, útgjöld, afkoma og skuldir ríkissjóðs þróist á tímabilinu. Samkvæmt henni á ríkissjóður að skila 1,1 milljarðs króna afgangi á næsta ári. Heildargjöld ríkissjóðs nema hins vegar 1.683,5 ma.kr., svo afgangurinn nemur aðeins 0,065% af útgjöldum ríkissjóðs. Því má nánast ekkert út af bregða ef markmið um hallalaus fjárlög eiga að nást. Forsendur hafa versnað Forsendur fjármálaáætlunar byggja á efnahagsspá Seðlabankans frá því í febrúar á þessu ári. Í uppfærðri spá Seðlabankans, sem kom út fyrr í þessum mánuði, hafa horfurnar hins vegar versnað. Þar er gert ráð fyrir meira atvinnuleysi, meiri verðbólgu og minni hagvexti. Ekki er tekið tillit þessara breyttu forsenda í fjármálaáætluninni. Samkvæmt forsendum áætlunarinnar kostar hvert prósentustig atvinnuleysis ríkissjóð 9-10 milljarða króna. Breytt spá um atvinnuleysi, úr 4,3% í 5%, gefur því ein og sér til kynna 6-7 ma.kr. útgjaldaaukningu. Í ofanálag tók frumvarp um styttingu bótatímabils atvinnuleysistrygginga breytingum í meðförum Alþingis. Bótatímabilið verður stytt úr 30 mánuðum í 24 mánuði í stað 18 mánaða eins og forsendur fjármálaáætlunar gerðu ráð fyrir. Sú breyting felur í sér 1,2 ma.kr. viðbótarútgjöld árið 2027 og 3,7 ma.kr. árlega eftir það. Seðlabankinn gerir jafnframt ráð fyrir hærri verðbólgu en áður, eða 3,6% í stað 2,7%. Hærri verðbólga hækkar vaxtakostnað og verðbætur á skuldum ríkissjóðs. Þótt hún geti aukið tekjur ríkissjóðs (til að mynda með hærri tekjum af virðisaukaskatti), þá eykur hún óvissu í rekstri ríkisins. Uppfærð spá Seðlabankans gerir loks ráð fyrir minni hagvexti en áður, eða 1,8% í stað 2,2%. Minni hagvöxtur þýðir að efnahagsumsvif verða minni og tekjur ríkissjóðs lægri en ella. Af framangreindu er ljóst að nýsamþykkt áætlun um hallaus fjárlög árið 2027 mun ekki standast að óbreyttu. Lántaka heldur áfram Afkoma ríkissjóðs segir þó aðeins hálfa söguna. Hún mælir muninn á tekjum og gjöldum, en tekur ekki tillit til fjárfestinga, lánveitinga, afborgana og annarra fjármagnshreyfinga. Til þess þarf að horfa á lánsfjárjöfnuð, sem sýnir hvort ríkið þurfi að taka ný lán eða geti greitt niður skuldir. Gert er ráð fyrir að lánsfjárjöfnuður verði neikvæður allt tímabil fjármálaáætlunar. Lántökur umfram afborganir verða að jafnaði um 88 ma.kr. á ári á tímabilinu. Með öðrum orðum þarf ríkið áfram að fjármagna sig með nýjum lánum, með tilheyrandi áhrifum á vaxtakostnað til lengri tíma. Skuldasöfnun undanfarinna ára hefur gert það að verkum að vaxtagjöld eru orðin næst stærsti útgjaldaliður hins opinbera. Samkvæmt fjármálaáætlun munu vaxtagjöld ríkissjóðs nema samtals um 790 ma.kr. á tímabilinu, sem jafngildir rúmlega 430 milljónum króna á dag næstu fimm ár. Þegar svo stór hluti skatttekna fer í vaxtagjöld dregur það úr svigrúmi til að fjármagna grunnþjónustu, innviðauppbyggingu og önnur brýn verkefni ríkisins. Þess vegna skiptir ekki aðeins máli að skila rekstrarafgangi, heldur einnig að stöðva áframhaldandi skuldasöfnun. Hagræðing skilar sér of hægt Til að tryggja afgang og stöðva áframhaldandi lántökur þarf að ráðast í hagræðingu. Í upphafi kjörtímabils bárust stjórnvöldum um 4.000 umsagnir með yfir 10.000 hagræðingartillögum. Starfshópur forsætisráðherra útfærði í kjölfarið 57 tímasettar aðgerðir sem gætu sparað ríkinu 71 ma.kr. á tímabilinu 2026-2030. Framkvæmdin hefur hins vegar gengið hægt. Á því rúma ári sem liðið er frá kynningu áformanna hafa aðeins 5 af 57 aðgerðum komið til framkvæmda. Nú bendir flest til þess að við þinglok muni stjórnvöld falla frá stórum aðgerðum sem starfshópurinn lagði til, þrátt fyrir að forsendur fjármálaáætlunar hafi versnað og þörfin fyrir hagræðingu aukist. Hallalaus fjárlög eða óskhyggja? Frá því lög um opinber fjármál voru sett fyrir um áratug hefur fjármálaáætlun átt að vera leiðarvísir fyrir ríkisfjármálin og skapa fyrirsjáanleika um þróun tekna, útgjalda, afkomu og skulda. Slík áætlun gegnir þó aðeins hlutverki sínu ef forsendurnar eru trúverðugar og þær aðgerðir sem hún byggir á koma til framkvæmda. Hvorugt á við nú. Efnahagshorfur hafa versnað frá því áætlunin var lögð fram, áætlaður afgangur er hverfandi lítill og lánsfjárjöfnuður verður áfram neikvæður allt tímabilið. Á sama tíma ganga hagræðingaraðgerðir hægt og flest bendir til þess að stjórnvöld ætli að falla frá stórum aðgerðum sem starfshópur þeirra lagði til. Það er jákvætt að stjórnvöld setji sér markmið um jafnvægi í ríkisfjármálum. En markmið duga skammt ef forsendurnar standast ekki og aðgerðirnar fylgja ekki með. Vilji stjórnvöld ná raunverulegum árangri í ríkisfjármálum þurfa þau að byggja á réttum forsendum og fylgja eftir eigin hagræðingaraðgerðum. Annars er markmiðið um hallalaus fjárlög lítið annað en óskhyggja. Höfundur er hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birta Karen Tryggvadóttir Mest lesið Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar