Skilur ekki hvernig ríkið ætlar að komast undan ábyrgð Árni Sæberg skrifar 16. júní 2026 12:01 Sigurður G. Guðjónsson gætir hagsmuna fjölskyldu Bayenes í málinu. Vísir/Einar Íslenska ríkið hefur ákveðið að áfrýja dómi héraðsdóms í plastbarkamálinu svokallaða, þar sem ríkið var dæmt skaðabótaskylt vegna dauða Andemariams Bayene. Lögmaður fjölskyldu Bayenes furðar sig á áfrýjuninni.
Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 21. maí síðastliðnum var skaðabótaábyrgð ríkisins viðurkennd en fjölskylda Bayenes hefur ekki enn sett fram endanlega fjárkröfu. Í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins um áfrýjun málsins segir að mikilvægt sé að mati ráðuneytisins að svo sérstakt og alvarlegt mál fái umfjöllun á æðra dómstigi og að niðurstaða þess og röksemdir teljist eins óumdeildar og unnt er. Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Marhawit Baryamikael Tesfaslase, ekkju Bayenes, og þriggja barna þeirra, furðar sig á þessari afstöðu ráðuneytisins. „Hún kemur nú á óvart vegna þess að þetta er áfrýjun til Landsréttar og svona miðað við tilkynningu á vef Stjórnarráðsins þá er talið mjög nauðsynlegt að fá úr þessum réttarágreiningi skorið. Hann er nú búinn að standa í nærri því tíu ár. Þannig ég hefði nú haldið að það hefði nú verið vitlegra að óska eftir að skjóta málinu beint til Hæstaréttar, til þess að fá þá úr þessu skorið endanlega.“ Telur að ríkið færi með málið lengra Þá liggi enginn vafi fyrir í málinu um að lög um sjúkraskrár hafi verið brotin og gögn verið fölsuð til þess að koma fram aðgerð á Bayene í Svíþjóð. „Þannig að ég veit svo sem ekki hvað það er sem er svona mikilvægt í þessu máli að það þurfi að bera þetta undir Landsrétt, en þó ekki Hæstarétt, því að ef að Landsréttur staðfestir héraðsdóm þá mætti nú ætla, miðað við fréttatilkynninguna, að það yrði ekki talið nægjanlega gott. Þannig að þetta kemur mér á óvart.“ Áttar sig ekki á því hvernig ríkið ætlar að koma sér undan ábyrgð Þá segir Sigurður skaðabótaábyrgð ríkisins ótvíræða, skýrsla þriggja sérfræðinga um að lög um sjúkraskrár hafi verið brotin liggi fyrir, sýnt hafi verið fram á að gögnum um Bayene hafi verið breytt áður en hann fór í aðgerð í Svíþjóð, og framkvæmdar hafi verið rannsóknir á honum í þágu vísindaskrifa, sem nú hafi verið dæmd dauð og ómerk. „Það líka liggja fyrir alvarlegar athugasemdir við það að sjúklingurinn var hafður til sýnis ári eftir aðgerðina og því haldið að þjóðinni og fleirum að allt hefði þetta nú tekist og hvernig ríkið ætlar að komast undan ábyrgð á starfsmönnum sínum, því átta ég mig ekki alveg á.“
Plastbarkamálið Dómsmál Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Halla ein án fasts nefndarsætis eftir Framsóknarkapal Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Sjá meira