Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Áróra L Davíðsdóttir skrifar 14. júní 2026 17:11 Jón Helgi Egilsson, doktor í hagfræði og fyrrverandi formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, segir atvinnuleysi afar dýrt og bitni helst á ungu fólki. Doktor í hagfræði telur að upptaka evru gæti leitt atvinnuleysi yfir Íslendinga og kostnaðurinn sé því mun meiri en ábati kynni að vera. Hann segir atvinnuleysi afar dýrt fyrir þjóðina og hafi þung áhrif á ungt fólk.
Jón Helgi Egilsson, doktor í hagfræði og fyrrverandi formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, ræddi evrumálin við Kristján Kristjánsson í Sprengisandi í morgun. Hann segir evruna gjaldmiðlakerfi sem gangi út á fastgengi en að hagsveiflur íslenska efnahagskerfisins séu þess eðlis að evran henti illa. Fastgengi evrunnar geti komið niður á efnahagslegum vexti þar sem samkeppnishæfni atvinnulífsins sé ekki hámörkuð sem geti aukið atvinnuleysi. Hann segir mannauðinn eitt það verðmætasta sem ríki eiga og að yfir lengra tímabil hafi atvinnuleysi á Íslandi verið tiltölulega lágt. Hann segir atvinnuleysi afar dýrt og bitni helst á ungu fólki. Ekki bara dvíni hæfni og andleg heilsa fólks, heldur er hætta á að það flytji úr landi. Hann segir fordæmi fyrir þessu vera í Evrópulöndum, svo sem Spáni og Grikklandi, þar sem ungt fólk hafi flust úr landi í leit að betri atvinnutækifærum vegna mikils atvinnuleysis. Þannig missi ríki reynslu, þekkingu og framtíðarskattgreiðendur. Í spilaranum má hlusta á viðtalið í heild sinni: Hann telur mikilvægt að rækta og styrkja atvinnu- og búseturétt fjórfrelsisins á Schengen-svæðinu, að fólk hafi frelsi til þess að flytja erlendis til að vinna, en verra sé það þegar fólk neyðist til þess. Mestu máli skipti fyrir Ísland að vera með samkeppnishæfan efnahag og segir fastgengi evrunnar óumdeilanlega ekki vera bestu leiðina til að hámarka samkeppnishæfni. Hann segir flestum vera umhugað um háa vexti hérlendis og segir það vissulega satt að vextir á Íslandi séu hærri að jafnaði en annars staðar í Evrópu en þó sé það bara hálfur sannleikur. Mikilvægt sé að horfa á vextina í samhengi hárrar verðbólgu. Há verðbólga hérlendis hækki ekki einungis vexti heldur hækki hún einnig laun landsmanna sem hækki hraðar en annars staðar í Evrópu og sömuleiðis eignarverð húsnæðis sem er fjármagnað með lánum með hærri vöxtum.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sprengisandur Efnahagsmál Íslenska krónan Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira