Viðskipti innlent

Höskuldur nýr fram­kvæmda­stjóri af­þreyingar- og ævintýrasviðs

Freyja Þórisdóttir skrifar
 Höskuldur Elefsen, nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Icelandia, er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með PADI Divemaster leiðsöguréttindi í köfun.
Höskuldur Elefsen, nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Icelandia, er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með PADI Divemaster leiðsöguréttindi í köfun. Aðsend

Höskuldur Elefsen hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra afþreyingar- og ævintýrasviðs Icelandia. Höskuldur hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra dive.is síðastliðin tíu ár og gekk til liðs við Icelandia þegar fyrirtækin sameinuðust árið 2021.

Höskuldur er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með PADI Divemaster leiðsöguréttindi í köfun. Er þetta meðal þess sem fram kemur í tilkynning en þar segir einnig að hann hafi „víðtæka reynslu af innlendri ferðaþjónustu úr störfum sínum hjá Dive og hafi náð miklum árangri í að marka stöðu fyrirtækisins sem fremst í sínum flokki á heimsmælikvarða“.

Vörumerkið hafi alla tíð verið þekkt fyrir áherslu á öryggi, framúrskarandi þjónustu og jákvæða upplifun gesta og hafi nýverið ferð Dive í Silfru hlotið þann titil að þykja besta einstaka upplifun ferðamanna í heimi á Tripadvisor.

Björn Ragnarsson, forstjóri Icelandia, segir mikla uppbyggingu vera hafna við Litlu Kaffistofuna en fyrirtækið keypti hana í ágúst síðasta árs.

„Undir afþreyingar- og ævintýrasvið heyra fjölbreyttar útivistarferðir Íslenskra Fjallaleiðsögumanna víða um landið ásamt köfunar- og snorklferðum DIVE og nýrri afþreyingarstarfsemi við Litlu Kaffistofuna sem er nú í eigu Icelandia. Þar er hafin mikil uppbygging með fjölbreyttu úrvali afþreyingar, fjórhjólaferða, veitingasölu og leigu á veislusal sem stóla á að við veitum framúrskarandi þjónustu. Höskuldur er því klárlega á heimavelli og mun án efa styrkja starfsemi sviðsins á þessari ævintýralegu vegferð,“ segir Björn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×