Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Ágúst Orri Arnarson skrifar 10. júní 2026 12:30 Jadon Sancho og Marcus Rashford voru lánaðir út á síðasta tímabili. Richard Heathcote/Getty Images Jadon Sancho er á förum frá Manchester United sem samningslaus leikmaður. Marcus Rashford er hins vegar á leiðinni aftur til Manchester, því Barcelona vildi ekki halda honum.
Manchester United staðfesti í morgun að þrír leikmenn væru að renna út á samningi og á förum frá félaginu; Casemiro, Tyrrell Malacia og Jadon Sancho. Sancho var keyptur á 85 milljónir evra árið 2021 en hefur ekki spilað fyrir United í tæp tvö ár, eftir að hafa lent upp á kant við þáverandi þjálfara, Erik Ten Hag. Sancho fór að láni til síns fyrrum félags, Borussia Dortmund, seinni hluta tímabils 2024. Hann var síðan lánaður til Chelsea tímabilið eftir en tókst ekki að heilla þar. Á síðasta tímabili fór Sancho svo á láni til Aston Villa og varð Evrópudeildarmeistari en skoraði aðeins eitt mark í öllum keppnum. Nú er komið að leiðarlokum hjá Sancho, sem er fjórði dýrasti leikmaður í sögu United. Hann fer frítt frá félaginu og talið er að hann muni semja aftur við Borussia Dortmund. Rashford snýr aftur en verður líklega seldur Spænski miðillinn Marca greindi frá því í morgun að Barcelona myndi ekki festa kaup á Marcus Rashford. Rashford snýr því aftur til Manchester United en talið er að félagið muni selja hann frá sér síðar í sumar. Rashford varði síðasta tímabili á láni hjá Barcelona og félagið hefði getað fengið hann fyrir þrjátíu milljónir evra. Barcelona ákvað frekar að festa kaup á Anthony Gordon, sem kemur til félagsins fyrir sjötíu milljónir evra frá Newcastle. Rashford og Gordon spila sömu stöðu og berjast þessa stundina um byrjunarliðssæti hjá enska landsliðinu á HM.
Enski boltinn Manchester United FC Barcelona Mest lesið Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Selfyssingar syrgja Sport Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Fleiri fréttir Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Sjá meira