Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Samúel Karl Ólason skrifar 10. júní 2026 10:18 Margir óeirðarseggir í Belfast voru grímuklæddir. AP/PA Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, segir að óeirðaseggir í Belfast muni verða sóttir til saka. Óöldin sem þeir ollu í borginni sé sjokkerandi og með öllu ólíðanleg. Ekkert geti réttlætt ofbeldi og það hvernig ýtt var undir óeirðirnar á netinu og annarsstaðar.
Þá sagði Starmer á samfélagsmiðlum í morgun ljóst að veist hefði verið að fólki vegna bakgrunns þess og kallaði eftir ró. Grímuklæddir menn gengu um götur Belfast í Norður-Írlandi þar sem þeir grýttu fólk, veittust að lögregluþjónum og brenndu rusl, bíla, strætisvagn og nokkur heimili fólks, á meðan þeir kölluðu eftir því að útlendingum yrði vísað úr landi. Það gerðu þeir eftir að maður frá Súdan réðst á mann í borginni með hníf og særði hann mjög alvarlega. Sjá einnig: Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Ráðamenn í Norður-Írlandi hafa fordæmt ofbeldið en Michelle O‘Neill leiðtogi Norður-Írlands sagði óeirðaseggina vera fauta. Grímuklæddu mennirnir hefðu sýnt „viðurstyggilegan heigulsskap“. Íbúi lýsti aðstæðum í Belfast í gær við stríðssvæði, í samtali við Sky. Anselme Shima told @ConnorGillies about the moment smoke from a bus entered his home while he was inside with his children during last night’s protests in Belfast.He says, "It's like a warzone" pic.twitter.com/hCg510RRJY— Ridge & Frost (@RidgeandFrost) June 10, 2026 Samkvæmt frétt Reuters voru mennirnir grímuklæddu margir og hefur fréttaveitan eftir presti og stjórnmálamönnum að flest fórnarlömb þeirra hafi verið þeldökk. Um hundrað grímuklæddir menn fóru um eina tiltekna götu í austurhluta borgarinnar þar sem þeir ruddust inn á heimili og brutu rúður. Flestir íbúar þeirrar götu eru þeldökkir, samkvæmt presti sem ræddi við BBC. Rætt var við annan íbúa í morgun sem missti allt þegar heimili hans var brennt. "They've done it to one of their own"Sky's @ConnorGillies spoke to Jamie Corry, the resident of one of the houses that caught fire in the violent protests that took place in Belfast last night. pic.twitter.com/8jikDQXLTY— Ridge & Frost (@RidgeandFrost) June 10, 2026 Naomi Long, dómsmálaráðherra Norður-Írlands, sagði í samtali við Reuters að utanaðkomandi aðilar sem gætu ekki fundið Norður-Írland á korti hefðu í vondum tilgangi vopnvætt þann eðlilega ótta og reiði sem árásin á mánudaginn olli, til að ráðast að fólki sem deilir húðlit árásarmannsins. „Ekki leyfa aðilum sem ganga fram í vondri trú að nýta réttmætar áhyggjur ykkar. Við í Norður-Írlandi vitum hvað það að gera heilum hópi fólks upp sakir vegna hegðunar fárra getur valdið miklum skaða, og þangað viljum við ekki fara aftur.“ Claire Hanna, sem leiðir stærsta stjórnarandstöðuflokkinn í Norður-Írlandi, sló á svipaða strengi. Hún lýsti óeirðunum í gær sem ofsóknum byggðum á þjóðerni. „Netverjarnir sem blésu þetta upp munu snúa sér að öðru og íbúar Belfast munu sitja eftir og þurfa að takast á við afleiðingarnar.“ Árásarmaðurinn færður fyrir dómara í dag Hnífaárásin á mánudagskvöldið var fönguð á myndband sem hefur farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla á Bretlandseyjum og víðar. Þar réðst maður á fertugsaldri frá Súdan á annan mann á fimmtugsaldri og stakk hann og skar svo hann hlaut mjög alvarleg sár á augum, andliti og baki. Hann lifði árásina þó af. Árásarmaðurinn, sem heitir Hadi Alodid, var handtekinn en hann kom til Norður-Írlands frá Írlandi árið 2023 og sótti þar um hæli. Þá fékk hann dvalarleyfi til fimm ára. Af hverju hann réðst á manninn liggur ekki fyrir en nokkrir óbreyttir borgarar komu fórnarlambinu til aðstoðar og tókust á við árásarmanninn áður en lögregluþjóna bar að garði. Þessir borgarar eru sagðir hafa bjargað lífi fórnarlambsins, sem missti auga í árásinni. Árásarmaðurinn hefur verið ákærður fyrir morðtilraun og var færður fyrir dómara í morgun. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðahald og á ekki séns á að vera sleppt gegn tryggingu. Hann á næst að mæta fyrir dómara þann 8. júlí.
Norður-Írland Bretland Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Fleiri fréttir Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Sjá meira