Marius sleppur ekki eftir allt saman Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. júní 2026 10:19 Lukka Mariusar Høiby reyndist skammlíf. Getty Marius Borg Høiby verður ekki látinn laus úr gæsluvarðhaldi til að vera við hlið veikrar móður sinnar eftir allt saman. Lögmannsrétturinn í Borgarþingi, annað dómsstig, féllst á sjónarmið saksóknara sem skaut málinu þangað.
Í gær var greint frá því að héraðsdómurinn í Ósló hefði fallist á kröfu Mariusar og verjanda hans um að hann yrði látinn laus vegna alvarleika veikinda móður hans, Mette-Marit krónprinsessu. Héraðsdómur taldi hættuna á því að hann brjóti aftur af sér minni en áður. Lögmannsrétturinn var ekki sammála þessari niðurstöðu. Í úrskurði sínum rökstyður hann ákvörðun sína með vísan til konunnar frá Frogner, hinnar margumtöluðu fyrrverandi kærustu Mariusar, sem er alltaf kölluð þessu nafni. Hún hefur fengið út gefið nálgunarbann á Marius en hann hefur gengist við því að hafa brotið gegn því ítrekað. „Eins og lögmannsrétturinn lítur á þetta er þetta ekki spurning um vilja, en frekar spurning um hæfi, líferni og áhættuþætti,“ hefur VG úr úrskurði lögmannsréttarins. Marius Borg Høiby hefur sætt gæsluvarðhaldi í rúma fjóra mánuði. Réttarhöld yfir honum fyrir röð ofbeldis- og kynferðisbrota hófst í febrúar. Hann fór fram á að honum yrði sleppt í ljósi þess að móðir hans, Mette-Marit krónprinsessa, hefði verið sett á biðlista fyrir lungnaígræðslu. Skilyrði fyrir því að vera á þessum lista er að vera ekki lífs auðið lengra en eins til tveggja ára. VG hefur eftir verjanda Mariusar, Ellen Holager Andenæs, að úrskurður lögmannsréttarins sé mikil vonbrigði. Þau muni nýta alla kosti sem þau hafa til að áfrýja niðurstöðunni.
Noregur Mál Mariusar Borg Høiby Kóngafólk Erlend sakamál Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira