Viðskipti innlent

Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Ásta Ólafsdóttir og Sigurður Pétur Oddsson, nýir leiðtogar hjá Ljósleiðaranum.
Ásta Ólafsdóttir og Sigurður Pétur Oddsson, nýir leiðtogar hjá Ljósleiðaranum. Ljósleiðarinn/Einar Örn

Ásta Ólafsdóttir og Sigurður Pétur Oddsson hafa gengið til liðs við Ljósleiðarann. Ásta sem forstöðukona Sölu og þjónustu og Sigurður sem leiðtogi sölu og viðskiptaþróunar, segir í fréttatilkynningu frá Ljósleiðaranum.

„Ásta kemur til starfa með víðtæka reynslu af stjórnun, sölu og þjónustu,“ segir í tilkynningunni. „Undanfarin ár hefur hún starfað hjá Origo, fyrst sem þjónustustjóri í skýja- og netrekstri og síðar sem forstöðukona rekstrarþjónustu. Þar leiddi Ásta öflug teymi með áherslu á framúrskarandi þjónustu, öruggan rekstur í hröðu tækniumhverfi og sterkt samstarf við viðskiptavini.“

Áður starfaði Ásta hjá Nova í um níu ár þar sem hún gegndi stjórnunarhlutverkum og leiddi meðal annars sölu- og þjónustu á bæði einstaklings- og fyrirtækjamarkaði. 

„Ljósleiðarinn er spennandi fyrirtæki með mikilvægt hlutverk í samfélaginu okkar. Ég hef alla tíð lagt áherslu á framúrskarandi upplifun viðskiptavina og hlakka til að vinna með öflugu starfsfólki að því að efla þjónustuna enn frekar og styðja við áframhaldandi vöxt félagsins,“ segir Ásta í tilkynningunni. 

 Sigurður starfaði áður hjá Isavia þar sem hann lagði áherslu á upplifun farþega, stafræna þróun og umbætur í rekstri. Hann er með meistaragráðu í markaðsfræði frá Háskólanum á Bifröst og BS-gráðu í viðskiptafræði.

„Sigurður er með víðtæka reynslu af viðskiptaþróun, nýsköpun og þróun þjónustu- og tæknilausna.“

„Ég er mjög spenntur að ganga til liðs við Ljósleiðarann. Íslenskt samfélag treystir á innviði Ljósleiðarans á hverjum degi og félagið gegnir lykilhlutverki í stafrænni uppbyggingu landsins. Tækifærin fram undan eru gríðarleg og ég hlakka til að vinna með framúrskarandi teymi Ljósleiðarans að áframhaldandi vexti, sterkum viðskiptasamböndum og þróun lausna sem skapa virði fyrir viðskiptavini og samfélagið í heild,“ segir Sigurður í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×